kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar í seinna andsvarinu að spyrja hæstv. ráðherra hvort skoðað hafi verið að lækka eða undanskilja gjald á almenningssamgöngur, t.d. á strætó. Ef margir fara í strætó eru færri bílar að fara um göturnar og það ætti því að hafa betri áhrif á vegakerfið. Mig langaði líka að spyrja: Nú er það þannig að ef maður er duglegur við að setja inn upplýsingar um það hver kílómetrastaðan er í hverjum mánuði þá endar Ísland.is á því að senda manni sjö pósta um annaðhvort inneign eða leiðréttingar o.s.frv. Er ekki hægt að gera þetta á aðeins skilvirkari og betri hátt?