kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Varðandi útfærsluna þá er hún alltaf að batna og mun klárlega halda áfram að batna mjög hratt. Það hefur gengið alveg ótrúlega vel, held ég að megi segja. Það sem hv. þingmaður var síðan að tala um varðandi almenningssamgöngur þá er meginbreytingin hér jafnræði, gagnsæi og að byggt er á notkun; þeir borga sem nota og þeir borga sem losa, það eru meginskilaboðin. Ef við vildum búa til aðra hvata til að auka almenningssamgöngur held ég að við eigum ekki að nota þetta kerfi. Þó skal það sagt að í þessu frumvarpi er verið að leggja til að næstu árin greiði þeir sem til að mynda eru á hópferðabílum, það er strætisvagnar sem ganga fyrir rafmagni, lægra gjald en rukkað er af öðrum í nokkur ár vegna þess að við erum að búa til þann hvata að fá fleiri hreinorkubíla á göturnar. Ég vil því segja: Við höfum hugsað til þessa en ef við ætlum að fara að búa til aðra hvata til að auka almenningssamgöngur þá held ég að við eigum að hugsa út fyrir þetta box. Hér er jafnræði, gagnsæi, skilvirkni og einfaldleiki og réttlát umskipti haft að leiðarljósi. Og vegirokkarallra.is er gríðarlega góður vefur til að svara öllum spurningum sem hér er spurt um og ég get ekki svarað.