kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Varðandi síðustu spurninguna þá getur ráðherra ekki tryggt það, það er Alþingi sem tryggir fjárheimildir. En ég get sagt að sá ráðherra sem hér stendur mun leggja það til að allar þær tekjur sem koma af þessu fari augljóslega til nauðsynlegrar uppbyggingar og viðhalds á vegakerfinu og samgöngukerfinu í heild sinni. Það er veruleg þörf á því og veitir ekkert af. Þess vegna er það orðið áhyggjuefni að þær tekjur séu hrapa. Varðandi mikilvægið þá er rétt að rifja það upp að við tókum í raun þessa ákvörðun í fyrra. Við erum lögð af stað í kerfisbreytingunum. Það að stoppa í miðri á mun valda fullt af erfiðleikum. Það er líka þannig að þetta er tekjugrunnur fyrir fjárlög næsta árs. Það mun skipta máli. Ég held að við sjáum líka öll fyrir okkur þegar eldsneytisgjöldin lækka hvaða áhrif það hefur í raun og veru á neysluvísitölu. Nú get ég ekki svarað því, það er Hagstofa Íslands sem gerir það, en miðað við þá ákvörðun sem við tókum í fyrra þegar hinir bílarnir fóru inn á þetta kerfi mun þetta, eins og kemur fram í frumvarpinu, væntanlega þýða lækkun um 1% á neysluvísitölu. Ég vil segja við þingið: Auðvitað þarf þingið og nefndin að vanda sig og fara yfir þetta flókna verkefni. En ég mun segja að það sé vel undirbyggt, það sé búið að reyna að róa fyrir allar víkur og skoða hlutina eins ítarlega og hægt er. Þessi kerfisbreyting er nauðsynleg fyrir Ísland. Hún er nauðsynleg fyrir það að við getum haldið áfram að hvetja til orkuskipta. Hún er nauðsynleg fyrir það að fá tekjur til að standa undir uppbyggingu á vegakerfinu.