155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:47]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Forseti. Já, ég geri mér grein fyrir því að þetta er ein af forsendum undir fjárlagafrumvarpið sem nú er til umræðu í fjárlaganefndinni. Samt sem áður hljótum við að þurfa, þegar við gerum slíkar kerfisbreytingar, að fara í gegnum alla þessa hluti og hvaða áhrif þetta hefur, t.d. á landsbyggðina og á fólk sem er að keyra mikið. Gott dæmi eru bílaleigurnar sem mig langar að nefna. Í samráðsgáttinni áttu þær að fá á sig svokallað daggjald upp á 670 kr. en núna er búið að hækka upp í 1.340 og ég heyri að það er allt galið hjá bílaleigunum og hvernig þær eigi t.d. yfir vetrartíma að rukka auka 1.340 kr. þegar leigan er kannski 5.000 kr. á dag.

Annað sem mig langar að nefna líka er veldisvöxtur, það er talað um jafnvel fjórfaldan veldisvöxt. Við erum að tala um 6,7 kr. grunnupphæð og hæsta upphæðin er fjórföld en það er vitað að 20 tonna trukkur er á við 10.000 bíla. (Forseti hringir.) Er einhver sanngirni í því að gjaldið eða krónutöluhækkunin sé svona, að við séum að hækka (Forseti hringir.) þetta fjórfalt þegar slitið eru á við 10.000 bíla?