kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Varðandi bílaleigugjaldið, daggjaldið, var í samráðsgátt verið að tala um 100 km eða 670 kr. daggjald. Það þótti lágt. Við hlustuðum og hækkuðum það en það eru aðrar leiðir til líka fyrir bílaleigurnar, það eru þrjár leiðir. Síðan er það þannig að ef maður tekur bílaleigubíl þá segir í þeim ákvæðum, í 38. atriði, að leigusali, sem eru þá bílaleigurnar, áskilur sér rétt til verðbreytinga án sérstaks fyrirvara, komi til breytingar af hálfu hins opinbera á vörugjöldum, sköttum eða öðrum gjöldum, þar með talið ný skattheimta, samanber kílómetragjald. Þannig að bílaleigurnar eru auðvitað búnar að byggja undir þetta. Þessa áskorun er að sjálfsögðu nauðsynlegt fyrir nefndina að taka upp og ræða. En það er búið að hugsa fyrir þessu og þessum 670 kr. í vinnuskjali í samráðsgátt var mótmælt og þess vegna birtist önnur tala í frumvarpinu.