155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:50]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna sem er vissulega vegna loftslagsbreytinganna og orkuskiptanna. En vert er að taka fram að 85% af orkunýtingu Íslendinga er hrein orka. Yfirleitt er þetta um 20% í öðrum ríkjum, þannig við erum komin gríðarlega langt hvað það varðar.

Það er margt að þessu frumvarpi sem hér er lagt fram. Ég get ekki séð annað en að hér sé aukin skattheimta á landsmenn. Það er gert ráð fyrir tekjuauka upp á 7 milljarða kr. Og hverjir borga það? Jú, landsmenn. Annað líka í þessu er að við verðum komin í skattheimtu af bifreiðum í 1,5% af vergri landsframleiðslu. Vissulega eru neikvæð áhrif fyrir ríkissjóð 2,7 milljarðar en hér er ekki hægt að sjá annað en að verið sé að vissu leyti að ráðast á landsbyggðina. Þeir keyra á þyngri bílum, þeir keyra meira, aka lengri vegalengdir. Það er styttra frá Sundahöfn upp í Bónus í Súðavogi heldur en frá Sundahöfn í Bónus á Ísafirði. Það segir sig sjálft. Og það slítur vegum landsins meira.

Ég vil taka til samanburðar að hagnaður Landsbanka Íslands af vaxtatekjum var 41,5 milljarðar fyrstu níu mánuði ársins. Bara þjónustugjöld voru 8 milljarðar. Þannig að við erum að tala um 50 milljarða í tekjur. Hefði ekki verið nær að afla tekna með því að leggja skatt á bankana til að ná í þessa 7 milljarða? Ég get ekki séð það öðruvísi en að hér sé um auknar skattheimtur á landsbyggðina að ræða. Það er landsbyggðin sem mun borga þessa 7 milljarða að stórum hluta til. Það er þannig að á landsbyggðinni eru stærri bílar og það er meira um bensínbíla og meira um olíubíla af því að innviðirnir eru ekki komnir. Það er meira um léttari bíla hér í Reykjavík. Af hverju? Það er styttra í vinnuna. Ef þú býrð hérna í 101 og vinnur í 101 þá getur þú bara átt lítinn bíl eða labbað. Það er allt öðruvísi á landsbyggðinni.

Þannig að ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Hefði ekki verið nær (Forseti hringir.) að sækja peninga til stofnana eins og Landsbankans sem skilar 50 milljörðum (Forseti hringir.) í hagnað núna í ár?