kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið. Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Þær lagabreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu munu hafa jákvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs og er áætlað að tekjuauki af breyttu tekjuöflunarkerfi verði um 7 milljarðar kr. á árinu 2025.“
7 milljarða kr. tekjuauki. Það er 7 milljarða aukning í skattheimtu á bifreiðaeigendur í landinu. Það er það sem verið að gera hérna. Það er vegna þess að það þarf að borga þessa 7 milljarða og þá get ég ekki séð annað en að það sé verið að auka skattbyrði á bifreiðaeigendur í landinu um 7 milljarða kr. Svo einfalt er það. Þá er spurningin: Á hverja leggst þetta? Jú, eins og ég sagði áðan er lengra frá Sundahöfn, vöruflutningahöfn landsins, í Bónus á Ísafirði en í Bónus í Súðavogi. Það segir sig sjálft. Það þarf að keyra þungar bifreiðar með matvöru út á land. Það segir sig sjálft. Það mun verða aukin skattheimta á þá sem búa úti á landi. Þeir keyra meira, þeir þurfa að fara lengri vegalengdir o.s.frv. Það er það sem er. Ég get ekki séð að þessi tekjuauki sé annað en aukin skattheimta. En kannski getur hæstv. fjármálaráðherra svarað því. (Forseti hringir.) Að lokum vil ég spyrja: Telur ráðherra að það sé nægilegur tími (Forseti hringir.) til að þetta fái þinglega meðferð núna rétt fyrir kosningar? Ég tel svo ekki vera.
(Forseti (OH): Ég minni hv. þingmann á að virða ræðutímann.)