155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég tel það. Við glímdum auðvitað við þetta í fyrsta skipti í fyrra. Þá var um miklu stærri ákvörðun að ræða. Þá vorum við að leggja af stað í þessa vegferð. Við erum að taka næsta skref sem er reyndar gríðarlega stórt af því að það eru öll ökutæki landsins undir önnur en hreinorku- og tengiltvinnökutæki. En já, ég held það og ég held að vinnan sem hefur verið lögð í þetta og þær upplýsingar sem ég veit að hv. þingmenn fá í nefndum og geta kynnt sér ítarlega inni á vefsíðunni Vegir okkar allra muni hjálpa til við að skilja hvað er verið að gera. Þegar ég segi að hér sé ekki um að ræða hækkun á skattheimtu þá eru sambærilegir bílar að borga sambærilega hluti. Það er þó þannig að þeir bílar sem eru sparneytnari eru sífellt að borga minna og minna fyrir notkun á vegunum. Þannig að það eru þeir bílar sem hækka. Þeir borga þá fyrir notkunina eins og annar bíll sem eyðir meiru. Þannig að það er rangt hjá hv. þingmanni að þessir bílar sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) og eru sparneytnari eða hreinorkubílar séu að fá ávinning út úr þessu. Það er heldur ekki rétt hjá hv. þingmanni að bifreiðaeigendur almennt, (Forseti hringir.) almenningur í landinu sé að fá á sig skattahækkun. Það er rangt. Það er ekki þannig. Þingmaðurinn getur kynnt sér það í gögnum frumvarpsins. Afsakaðu, frú forseti.

(Forseti (OH): Og enn minnir forseti á að það ber að virða ræðutíma.)