fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2024 sem er að finna á þskj. 304. Með frumvarpinu eru lagðar fyrir Alþingi tillögur um breytingar á fjárheimildum nokkurra málefnasviða og málaflokka og er frumvarpið það fimmta sinnar tegundar á árinu.
Áður hafa verið lögð fram og samþykkt fjögur fjáraukalagafrumvörp. Það fyrsta fól í sér heimild til stuðningsaðgerða við íbúa Grindavíkurbæjar og fyrirtæki á svæðinu og námu þær rúmum 8 milljörðum kr. Lögin fólu ekki í sér aukningu á fjárheimildum því almennur varasjóður var lækkaður á móti. Jafnframt var veitt heimild til Leigufélagsins Bríetar til að styðja við tímabundin kaup félagsins á 120 íbúðum til leigu fyrir Grindvíkinga. Annað fjáraukalagafrumvarps ársins fól í sér breytingar á heimildum í 5. og 6. gr. fjárlaga vegna kaupa á íbúðarhúsnæði í Grindavíkurbæ. Þriðja fjáraukalagafrumvarpið fól í sér 13,5 milljarða kr. aukningu fjárheimilda vegna aðkomu ríkisins að kjarasamningum á almennum markaði sem undirritaðir voru í mars. Jafnframt var gerð breyting á 5. gr. fjárlaga vegna breyttrar skiptingar lánaheimilda Húsnæðissjóðs. Fjórða fjáraukalagafrumvarps ársins fól í sér rúmlega 6,5 milljarða kr. aukningu fjárheimilda til að fjármagna byggingu varnargarða, framlengja stuðningsaðgerðir við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ og til að greiða kostnað við framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar. Því til viðbótar voru gerðar breytingar á heimildum 5. og 6. gr. fjárlaga vegna Fasteignafélagsins Þórkötlu sem komið var á fót fyrr á árinu vegna aðgerða tengdum Grindavíkurbæ.
Í frumvarpi þessu eru lagðar til auknar fjárheimildir til viðeigandi málefnasviða og málaflokka en rétt er að vekja athygli á því að í frumvarpi til fjáraukalaga er einungis verið að leita eftir auknum fjárheimildum. Frumvarpið felur því ekki í sér heildarendurmat á áætluðum útgjöldum ársins svo sem þegar um er að ræða útgjöld sem gætu orðið lægri en fjárheimildir ársins gerðu ráð fyrir. Þá er einnig lögð til breyting á 5. gr. fjárlaga yfirstandandi árs.
Lög um opinber fjármál marka skýra stefnu um hlutverk og efni fjáraukalaga. Þannig er tilgreint í lögunum að fjármála- og efnahagsráðherra sé heimilt að leita aukinna fjárheimilda í frumvarpi til fjáraukalaga til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með öðrum þeim leiðum sem tilgreindar eru í lögunum. Ef fyrrgreindar leiðir duga ekki til er enn fremur hægt að mæta tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum, sem ekki er hægt að mæta með öðrum hætti, með almennum varasjóði. Það eru sem sagt sömu skilyrði fyrir greiðslum úr almennum varasjóði og við fjárauka.
Ég vil vekja athygli á því í tengslum við hlutverk og umfang fjáraukalaga að í 24. gr. laga um opinber fjármál er kveðið á um almennan varasjóð A-hluta ríkissjóðs. Skilyrði fyrir ráðstöfun úr sjóðnum eru sams konar og þau sem gilda um frumvarp til fjáraukalaga, eins og ég nefndi, þ.e. að honum er ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg. Í fjárlögum fyrir árið 2024 nemur fjárheimild sjóðsins um 45,6 milljörðum kr. eða sem svarar til um 3% af heildarfjárheimild fjárlaga ársins. Áformað er að ráðstafa um 20 milljörðum kr. vegna kjarasamningsbundinna hækkana opinberra starfsmanna í samræmi við forsendur fjárlaga, en enn er ósamið við stóran hluta þeirra. Einnig er gert ráð fyrir að um 18,5 milljörðum kr. verði ráðstafað vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Um er að ræða ýmsan kostnað sem þegar hefur raungerst eða gert er ráð fyrir að myndist fyrir lok árs. Enn fremur er gert ráð fyrir að um 3,6 milljörðum kr. úr almenna varasjóðnum verði ráðstafað vegna kostnaðar sem einkum hefur fallið til og varðar þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og málskostnað þeirra vegna. Þá er gert ráð fyrir um 1,1 milljarði kr. vegna ýmissa útgjaldamála sem voru til skoðunar við vinnslu frumvarpsins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari ráðstöfun úr sjóðnum, umfram þessa 18,5 og síðan 20 til kjarasamninga, og er því til staðar tæplega 2,4 milljarða kr. svigrúm til að bregðast við óvæntum og óhjákvæmilegum útgjöldum til áramóta.
Það er mat ríkisstjórnarinnar að best fari á því að þau verkefni sem eru inntak þessa frumvarps verði að svo stöddu ekki fjármögnuð beint með framlögum úr almenna varasjóðnum heldur óskað eftir heimildum með sérstökum fjáraukalögum.
Virðulegur forseti Ég vík nú að meginefni frumvarpsins. Í frumvarpinu eru lagðar til auknar fjárheimildir til viðeigandi málefnasviða og málaflokka, samtals um 24,5 milljarðar kr. eða sem nemur 1,6% hækkun frá fjárlögum ársins. Þyngst vegur tillaga um 14,5 milljarða kr. hækkun á heimildum vegna aukinna vaxtagreiðslna. Má það að mestu rekja til hærra hlutfalls skammtímafjármögnunar og aukinnar skuldabréfaútgáfu að hluta til vegna frestunar á sölu Íslandsbanka vegna kosninga. Hækkun frumgjalda nemur því 9,9 milljörðum kr. Tilefnin eru af ýmsum toga en eiga það sammerkt að í ljósi aðstæðna geta þær ekki beðið þess að fara í hefðbundinn farveg fjárlagavinnu í gegnum fjármálaáætlun og fjárlög og því sé eðlilegt að taka þær inn í frumvarp til fjáraukalaga 2024.
Þar má helst nefna tillögur sem flokkast geta sem bundin útgjaldatilefni sem óhjákvæmilegt er að greiða. Þar á meðal er lögð til 1,5 milljarða kr. hækkun á varnartengdum stuðningi við Úkraínu. Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í júlí sl. var samþykktur áframhaldandi varnartengdur stuðningur við Úkraínu.
Þá er lagt til að auka fjárheimildir um 2,9 milljarða kr. til að koma til móts við aukinn kostnað vegna þjónustu við vegakerfið sem skýrist helst af hækkandi verðlagi, aukinni tækjanotkun í mokstri, hálkuvörnum og þjónustu vegna aukinnar umferðar á vegakerfinu. Gert er ráð fyrir að fjárveiting til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar verði hækkuð um 900 millj. kr. vegna umsókna umfram fjárheimildir og að 800 millj. kr. viðbótarframlag verði veitt vegna þjónustutengdrar fjármögnunar á báðum sérhæfðu sjúkrahúsum landsins. Þá er gert ráð fyrir auknum framlögum vegna aðgerða gegn ofbeldi barna, alls 703 millj. kr. Þar af er 438 millj. kr. fjárveiting vegna aukins kostnaðar við öryggisvistun á Stuðlum, undirbúnings tímabundins vistunarhúsnæðis ásamt því að styrkja á forvarnir. Efla á samfélagslögreglu með 189 millj. kr. framlagi og þá er gert ráð fyrir 76 millj. kr. til að koma á fót ofbeldismóttöku fyrir börn sem heyra mun undir Landspítalann ásamt skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins. Fleiri óhjákvæmileg mál með lægri fjárhæðum eru einnig í frumvarpinu og hvet ég þingmenn að lesa frumvarpið og kynna sér þessi tilefni.
Í frumvarpinu eru enn fremur lagðar til millifærslur milli málefnasviða og málaflokka og breytingar á hagrænni skiptingu fjárheimilda. Um er að ræða breytingar sem hafa ekki áhrif á heildarútgjöld og þar með afkomu ríkissjóðs en geta haft áhrif til bæði hækkunar og lækkunar á fjárheimildum einstakra málefnasviða og málaflokka. Svo einhver dæmi séu nefnd þá er gert ráð fyrir að 665 millj. kr. verði millifærðar af málefnasviði skatta-, eigna- og fjármálaumsýslu á ýmis önnur málefnasvið vegna endurnýjunar ýmissa eldri upplýsingatæknikerfa.
Þá vek ég athygli á því að gert er ráð fyrir að nýta 1,7 milljarða kr. af svigrúmi málefnasviðs 27, Örorka og málefni fatlaðs fólks, til að fjármagna skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðustu ára. Þetta hefur ekki í för með sér hækkun fjárheimilda. Fjárhæð eingreiðslunnar myndi nema 70.364 kr. á árinu 2024.
Í frumvarpi er ráðuneytum heimilt að gera tillögur um millifærslur milli málefnasviða og málaflokka til að bregðast við þeim málum sem vísað var í hér á undan, svo sem uppsöfnuðum halla og öðrum útgjöldum innan fjárlagaársins. Þá er einnig heimilt í frumvarpi til fjáraukalaga að gera tillögur að breytingum á hagrænni skiptingu fjárheimilda innan málefnasviða og málaflokka, svo sem að færa úr rekstri í fjárfestingu.
Þá er eins og áður sagði lögð til breyting á 5. gr. fjárlaga þar sem gerðar eru tvær breytingar. Annars vegar að gerð verði breyting á 1. tölulið 5. gr. fjárlaga 2024 og lántökuheimild hækkuð í 250 milljarða kr., en lántökuheimild var hækkuð í 230 milljarða kr. í fyrri fjáraukalögum. Hækkun lántökuheimildar er til komin vegna þess að fyrirséð er að staða ríkisvíxla verður hærri en lagt var upp með í fjárlögum ársins 2024. Skýrist sú hækkun að mestu leyti af frestun á sölu hluta ríkissjóðs í Íslandsbanka sem gert var ráð fyrir í fjárlögum. Hins vegar er lagt til að endurlán til Byggðastofnunar verði hækkað úr 3 milljörðum kr. og verði allt að 5 milljarðar kr. á árinu 2024. Aukin eftirspurn er eftir lánum þar sem Byggðastofnun gerði í vor samning við Evrópska fjárfestingasjóðinn, EIF, um aðild að ábyrgðakerfi sem veitir stofnuninni ábyrgð á hluta lána sinna og gerir þeim kleift að bjóða lán í fleiri lánaflokkum til verkefna á borð við viðkvæm byggðarlög og lán til kynslóðaskipta í landbúnaði.
Lagt var mat á áhrif ráðstafana á kynjajafnrétti og lögð áhersla á áhrif hækkunar rammasettra útgjalda frá gildandi fjárlögum. Sé litið til umfangs liggur fyrir mat á jafnréttisáhrifum meira en 80% nýrra útgjaldaráðstafana. Tveir þriðju hluta ráðstafana eru taldir stuðla að jafnrétti eða taka mið af markmiðum um jafnrétti. Aðrar tillögur eru taldar viðhalda óbreyttri stöðu kynjanna en þar eru karlar almennt í meiri hluta meðal haghafa.
Í frumvarpinu er einnig farið yfir endurmetnar afkomuhorfur ríkissjóðs fyrir yfirstandandi ár. Nú er útlit fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs í ár verði um 68 milljarðar kr., eða 1,5% af vergri landsframleiðslu. Það er um 16 milljörðum kr., eða 0,3% af vergri landsframleiðslu, lakari afkoma en gert var ráð fyrir í áætlun fjárlaga. Breytinguna má rekja til vaxtajafnaðar sem lækkar um 20 milljarða kr. samanborið við fjárlög, hvort tveggja vegna hærri vaxtagjalda og lægri vaxtatekna. Á móti vega að hluta horfur um bættan frumjöfnuð sem áætlaður er að verði um 3 milljörðum kr. hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu þætti þessa fimmta frumvarps til fjáraukalaga fyrir árið 2024. Ég legg til að frumvarpinu verði, að lokinni þessari umræðu, vísað til hv. fjárlaganefndar og 2. umræðu.