fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Í greinargerð með fjáraukalögum kemur fram að nýta eigi 1,7 milljarða af svigrúmi málefnasvið 27, um örorku og málefni fatlaðs fólks, til að fjármagna skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðustu ára. Þetta er svokallaður jólabónus. Fjárhæð eingreiðslunnar nemur 70.364 kr. á árinu 2024. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra að því hvort það væri ekki rétt að við myndum líka vera með eingreiðslu eða svokallaðan jólabónus til fátækasta hóps eldri borgara í landinu sem hafa svo lágar tekjur að þeir fá óskertan ellilífeyri almannatrygginga. Hér er um fátækasta hóp samfélagsins að ræða, fátækasta hóp aldraðra. Miðað við tölur frá desember 2023 þá erum við að tala um 2.200 einstaklinga. (Forseti hringir.) Þetta eru mikið til konur sem hafa unnið heima og sinnt uppeldi barnanna o.s.frv. (Forseti hringir.) Væri ekki rétt að jólabónus væri veittur þeim. Það myndi kosta um 150 millj. kr.
(Forseti (OH): Enn minnir forseti hv. þingmann á að virða ræðutímann.)