155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:13]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hér segir í greinargerð með fjáraukalögum á bls. 45, með leyfi forseta:

„Eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega styrkir stöðu viðkvæms hóps í samfélaginu en um 2/3 hlutar hópsins eru konur og er aðgerðin því talin stuðla að jafnrétti.“

Það sem ég er að leggja til er að við munum líka taka utan um fátækasta hóp eldri borgara sem fær óskertan ellilífeyri almannatrygginga sem þýðir að þau fá nánast engar tekjur annars staðar frá. Það þýðir að þetta eru 2.200 einstaklingar sem við myndum þá veita jólabónus. Þetta eru mikið til konur sem unnu heima á starfsævi sinni, sinntu börnum og heimili og þessi kynslóð á svo sannarlega skilið að fá jólabónus og ekki síst þessar konur sem við myndum þá taka utan um hvað þetta varðar, alveg eins og við erum að gera með eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að taka utan um þetta mál og stuðla að þessu, við erum með breytingartillögu við fjáraukalög um að 150 millj. kr. verði varið til þess að þær fái svokallaðan jólabónus.