fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu mun ráðherra taka með sér það sem hér er rætt í dag og það sem síðan fer fram í nefndinni og ræða við nefndina með hvaða hætti við getum tryggt best stuðning við þá sem eru í viðkvæmasta hópnum. Þessi aðgerð hefur verið gerð í nokkur ár gagnvart örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum. Við erum jú að taka upp nýtt kerfi á næsta ári, 1. september, þannig að þetta er væntanlega í síðasta sinn sem þetta er gert með þessum hætti, nýtt kerfi tekur við á næsta ári. En það er rétt að það er hópur sem við höfum verið að skoða og í félagsmálaráðuneytinu var til skoðunar að styrkja þennan hóp sem nýtur minnstra lífeyrisgreiðslna og hefur það bágast, getum við sagt, af ýmsum sökum sem hv. þingmaður kom inn á og mikilvægt að fylgja því eftir og skoða hvernig hægt er að tryggja betur þann hóp.