fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Mig langar aðeins að spyrja út í þetta fjáraukalagafrumvarp en ætla nú að byrja á því að fagna því, sem hafði áður verið rætt í ríkisstjórn, sem varðar málefni er tengjast börnum og auknu ofbeldi, að það sé hér inni. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt þannig að það sé hægt að koma því verkefni í enn betra ferli strax.
Mig langar að spyrja út í fjárheimildirnar sem Vegagerðin er að fá, sem eru nálægt 3 milljörðum. Telur ráðherrann að þetta dugi til í vetur, þetta sé bara til þess að vega upp þann halla sem nú þegar liggur fyrir eða eigum við von á því að þurfa að bæta úr strax á nýju ári? Svo ætla ég líka að fagna þeim fjármunum sem settir eru í Loftbrúna annars vegar og að fólk sé að nýta hana og svo þessu með flugið milli Reykjavíkur og Húsavíkur.