fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Ég þakka ráðherranum svörin. Mig langar að vekja athygli á meinlegri villu í fjáraukalagafrumvarpinu á bls. 47, þar sem talað er um framlag til Bjargráðasjóðs vegna kaltjóns á ræktarlandi bænda á Norðfirði. Ég trúi að þetta eigi að vera á Norðurlandi og Austurlandi, bara svona ef einhverjir bændur fara að lesa þetta yfir. Mig langaði aðeins að halda áfram að spyrja, hér eru millifærslur í lið 12 og 13, þ.e. landbúnaði annars vegar og sjávarútvegi og fiskeldi hins vegar. Ég veit ekkert hvað þetta er, það er ekki skýrt í rauninni, bara að þetta sé einhver millifærsla. Ég átta mig ekki á því hvað er um að ræða þarna og spyr um það. Svo langar mig líka til að spyrja um það sem ég hafði á sínum tíma óskað eftir og fengið góðar móttökur, að koma riðuáætluninni í gang, sem voru litlir aurar í stóra samhenginu. Ég sé það ekki hérna inni og ég verð að segja að það veldur mér vonbrigðum af því að það færir hlutina talsvert til í tíma. Þannig að ég spyr um þetta tvennt.