155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bændur á Norðfirði hafa sennilega orðið hoppandi kátir að sjá allar þessar fjárhæðir. Þetta hefur nú farið fram hjá í prófarkalestrinum en auðvitað er þetta vegna þess leiðindaveðurs sem gekk yfir og hefur valdið umtalsverðu tjóni, ekki bara kali, og er kannski óunnið úr.

Varðandi það sem hv. þingmaður nefndi með þessar tilfærslur á milli þá er þetta fyrst og fremst forgangsröðun þarna inni á milli og ákvörðun ráðuneytanna væntanlega um að færa fjármuni úr einum lið í annan.

Það síðasta sem hv. þingmaður var að nefna varðar þetta frábæra verkefni þar sem við höfum skipt um takt og viljum útrýma riðu með nútímatækni en ekki útrýmingu hvers stofns fyrir sig með tilheyrandi kostnaði og leiðindum fyrir þá sem í því lenda. Það var mat okkar að þetta væri ekki fjáraukalagatengt mál heldur frekar fjárlagatengt mál, sem sagt inn í næsta ár, og mun verða tekið upp í þeirri vinnu.