155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:21]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir góða framsögu. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra um tvö mál. Í fyrra andsvari langar mig að spyrja um hlutdeildarlán. Nú vitum við það að við búum við mikið húsnæðisvandamál og það verður eflaust eitt af því sem flestir flokkar munu tala um í sinni kosningabaráttu. Samkvæmt fréttum og upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þá bárust þeim núna í október 145 umsóknir fyrir um 1.879 millj. kr. en aðeins hefur verið úthlutað 800 millj. kr. í þetta verkefni. Kom aldrei til greina hjá hæstv. ráðherra að bæta við þeim milljarði sem upp á vantaði til að hægt væri að ganga frá þessum hlutdeildarsamningum?