155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að húsnæðismálin eru eðlilega ofarlega á baugi. Hlutdeildarlánunum, þessari aðferð að styðja við þá sem ekki geta eignast eigið húsnæði með öðrum hætti en þessum, var gríðarlega vel tekið. Markaðurinn verðlagði sig sjálfur út af því í aðdraganda Covid. Í kjölfarið á Covid þá aðlöguðum við lánin breytingunum sem hefur orðið til þess að eftirspurnin hefur vaxið. Við erum með um 4 milljarða á ári til þessa stuðnings. Það er hugmyndafræðin að byggja um 400 íbúðir með þessum hætti og 600 í stofnframlagakerfinu eða 1.000 íbúðir með stuðningi hins opinbera. Ég held ég fari rétt með að menn ætli sér að að úthluta einu sinni enn á þessu ári þannig að ég hef vonir um að það náist að uppfylla það markmið sem menn höfðu um fjölda íbúða og að koma þessum fjármunum út, 400, og síðan eru 4 milljarðar aftur á næsta ári.