155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:23]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en mig langar að benda á að það var milljarður sem vantaði upp á fyrir þá sem sóttu um til útborgunar núna í ár. Þetta voru 142 umsóknir samtals þannig að það er a.m.k. helmingur þeirra sem fær ekki úthlutun.

Í seinna andsvari langaði mig að spyrja hæstv. ráðherra út í það að hluti af því fjármagni sem verið er að veita í fjáraukalögunum tengist Grindavík og m.a. varnargörðum. Nú veit ég að Vegagerðin hefur þrýst mikið á að það sé farið í að byggja varnargarða fyrir Reykjanesbraut sem myndi þá líka vernda Voga en sérfræðingar, jarðeðlisfræðingar, segja okkur að upptök næsta eldgoss geti færst norðar og mig langaði að spyrja hvort þetta sé eitthvað sem hæstv. ráðherra hefur verið að skoða.