fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Fyrst örlítið um hlutdeildarlánin. Það eru nokkur skilyrði sem þarf að uppfylla. Það er ekki bara að þeir sem sækja um þurfi að uppfylla ákveðin tekjuviðmið og eignaviðmið heldur þarf húsnæðið að uppfylla ákveðin verðviðmið og stærðarviðmið. Ef ég man rétt þá eru líka um 20% sem eiga að fara út á land. Þetta þarf því að passa inn í nokkra flokka þannig að þó svo að það komi mjög margar umsóknir er ekki þar með sagt að þær séu allar líklegar til að ganga eftir af ýmsum sökum. En ég vona auðvitað að sem flestir fái framgang sinna mála og ef ekki núna þá á næsta ári.
Varðandi varnargarða og fyrirhugaða varnargarða þá erum við auðvitað ekki í fjármálaráðuneytinu að velta slíku nákvæmlega fyrir okkur, það eru almannavarnir og kannski í öðrum ráðuneytum. Það hefur að sjálfsögðu komið til tals að við þurfum að vera í stakk búin fyrir þetta og ég hef sagt til að mynda að við tókum fyrir nokkrum mánuðum umræðu um svokallað varnargarðagjald sem var tímabundið og átti að skila milljarði eða einum og hálfum í þrjú ár. Nú eru þeir varnargarðar sem er búið að byggja orðnir umtalsvert dýrari. (Forseti hringir.) Mér finnst eðlilegt að næsta ríkisstjórn og næsta þing takist á við það hvernig við ætlum að byggja varnargarða (Forseti hringir.) vegna þess að áskorunin er mikil en reynslan af varnargörðunum er góð.