155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:26]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna um fjáraukalög og ég fagna því að það eigi að greiða eingreiðslu til öryrkja í desember. Það kemur fram að hún eigi að vera skattfrjáls og að þetta sé gert í samræmi við það hvernig hefur verið gert síðustu ár. Í fyrra flutti velferðarnefnd frumvarp til að taka af allan vafa um það að þessi eingreiðsla skyldi ekki teljast til tekna greiðsluþega og leiða ekki til skerðingar annarra greiðslna. Það var flutt sem breyting á lögum um almannatryggingar. Ég vil spyrja hvort það sé ekki hugsað að gera þetta með sama hætti núna. Ég sé ekki samsvarandi breytingu í neinum af þeim bandormum sem við erum að fjalla um (Forseti hringir.) en myndi telja nauðsynlegt að þessu væri bætt inn, annaðhvort af hálfu velferðarnefndar eða efnahags- og viðskiptanefndar (Forseti hringir.) sem eru að fjalla um ýmis mál sem tengjast þessum málum.