155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég nefndi einmitt í ræðu minni að þetta væri annars vegar með sambærilegum hætti og síðustu ár og að þessi fjárhæð væri skattfrjáls er sú að það var fyrirhugað að það væri þá gert með sambærilegum hætti. Það er góð ábending hjá hv. þingmanni að væntanlega hefur þessi afgreiðsla í fyrra verið einskiptis og þá þarf að horfa til þess varðandi það sem kemur hérna fram í frumvarpinu, þau áform að þetta sé einskiptisgreiðsla og skattfrjáls, og þá er ekki ósennilegt að það þurfi að fara sömu leiðir og voru farnar í fyrra. Ég þakka bara hv. þingmanni fyrir að taka þetta upp og benda á þetta.