155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[12:28]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tel að það sé alveg nauðsynlegt að þingið geri þessa breytingu til þess að það sem við leggjum upp með að gera, sem er auðvitað að auka ráðstöfunartekjur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, þýði ekki ofgreiðslu á öðrum greiðslum á móti. Þannig að ég ætla bara að leyfa mér að treysta því að hæstv. ráðherra sé með mér og okkur í þinginu í því að við vinnum þetta mál þannig að við klárum það með sóma og að peningarnir skili sér þangað sem ætlunin er að setja þá en verði ekki til þess að búa til ofgreiðslur annars staðar í kerfinu.