stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Ég held við séum öll sammála um það hér inni að mikilvægt er að styðja við Grindavík og við þann rekstur sem var þar og hefur verið. Það er hins vegar dálítið sorglegt að þetta er fyrst að koma núna, ellefu mánuðum eftir að rekstraraðilar þurftu margir hverjir að flýja Grindavík. Þó svo að það hafi verið ýmis stuðningsúrræði í boði þá erum við enn að bíða eftir tölum frá ráðuneytinu, við gerðum skýrslubeiðni sem ég vona að sé hægt að vinna í þó að verið sé að skipta um ríkisstjórn enda kom hún frá hv. þingmönnum úr nær öllum flokkum. Þessi stuðningsúrræði hafa ekki endilega nýst eins vel og von stóð til og mörg þeirra eru að renna út núna. Það hefur komið fram sú gagnrýni með þessa ákveðnu leið að þessi stuðningslán séu dálítið erfiður biti fyrir fólk að kyngja, að þurfa að taka lán á þeim háu vöxtum sem eru núna. Það er náttúrlega frábært að þau eru með ríkisábyrgð en samt sem áður, þetta eru lán. Það er líka spurning hversu margir lögaðilar falla undir þau skilyrði sem eru sett fram hér. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra: Kom aldrei til greina að skoða frekar það að kaupa upp atvinnuhúsnæði þessara aðila eins og gert var fyrir heimilin?