155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að stuðningslánin ein og sér eru ekki nein galdralausn, þau eru áframhaldandi haldreipi fyrir þá sem sjá sér fært annaðhvort að komast í gegnum tiltekinn skafl eða nota þau hugsanlega til þess að færa starfsemi sína úr Grindavík, telji þau ekki líklegt að geta verið með rekstur í Grindavík í framhaldinu og fleiri þætti. Við þekkjum alveg af umræðunni, bæði ég og hv. þingmaður og ýmsir fleiri, að það hefur ekkert verið æpandi eftirspurn eftir því að fá þetta úrræði. Engu að síður er þetta eitt af þeim úrræðum sem við töluðum um að þyrftu að vera til staðar. Við sáum það í Covid að þau reyndust betri en menn óttuðust fyrst. Þar var líka talað um að enginn ætlaði að taka slíkt úrræði en margir gerðu það og var gríðarlega hjálp af. Þannig að hér er mikilvægt að þetta komi fram. Þetta er það sem við getum í starfsstjórn lagt fram sem hluta af framhaldinu. Það er hins vegar þannig að það er búin að vera vinna í gangi er varðar ýmsa aðra þætti í Grindavík sem hreinlega, vegna þeirra aðstæðna að það eru kosningar eftir innan við 40 daga, verða að bíða ákvarðanatöku nýrrar ríkisstjórnar þar sem þar væri um pólitíska stefnumörkun að ræða.