155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:38]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hæstv. ráðherra svaraði þó ekki þeirri spurningu sem ég lagði fram í lokin sem var sú hvort komið hefði til greina að kaupa upp atvinnuhúsnæði af lögaðilum vegna þess að það er snaran sem margir atvinnurekendur eru með um hálsinn, að eiga þar atvinnuhúsnæði sem þeir geta ekki losað sig undan. Hæstv. ráðherra sagði að það væru ýmis mál sem hefði þurft að koma með hér inn en þar sem einungis væri um starfsstjórn að ræða þá væri það erfitt. Nú hefur það verið þannig hingað til í málefnum tengdum Grindavík að við sem erum hér inni höfum staðið þétt saman með Grindvíkingum og það er algerlega ljóst að hér væri ekkert mál að ná samstöðu innan þingflokka og með þeim sem standa fyrir utan flokka að koma í gegn fleiri mikilvægum málum fyrir Grindvíkinga því þau þurfa á okkar stuðningi að halda.