155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við höfum gert mjög margt, það er rétt hjá hv. þingmanni, og umfangið er umtalsvert. Það sem er þó ánægjulegast er að við höfum getað fylgst með tekjuþróun og afdrifum fólks í Grindavík frá þessum tíma og það hefur komið í ljós að þessi úrræði sem við lögðum af stað með, hvort sem það er launastuðningurinn eða rekstrarstuðningurinn eða húsnæðisstuðningurinn, hafa nýst gríðarlega vel. Við erum nýlega búin að fá upplýsingar um það með hvaða hætti það hefur gengið eftir. Atvinnuleysi hjá þessum hópi hefur t.d. verið mjög lágt og við höfum líka séð að þau úrræði sem við hugsuðum tímabundið hafa einmitt virkað, þau voru mjög sterk framan af og síðan var sótt minna og minna í þau þannig að við höfum séð mjög jákvæða þróun í þeirri nálgun sem við vorum með. Eftir standa ákveðin atriði og þau eru býsna stór og þau varða ekki bara ákvörðun um að standa með Grindavík heldur þarf líka að ákvarða með lengri hætti bæði fjármögnun og annað því að það væri stefnubreyting frá því sem við höfum verið með. Við höfum verið með þá stefnu að taka utan um heimili fólks, verið með þá stefnu að taka utan um fólk, sem hefur gengið býsna vel eftir. Stuðningslánin sem eru hér að bætast við eru líka til þess að halda áfram að halda utan um og vera til stuðnings, vera möguleiki fyrir þá sem geta nýtt sér þau. En aðrar ákvarðanir sem menn hafa verið að vinna að og eru fjölmargar og stórar verða einfaldlega að bíða þess að það komi ný ríkisstjórn sem taki ákvarðanir um hvað hún vilji gera í framhaldinu.