stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Í stuttu máli þá er þetta frumvarp ekki í neinu samræmi við það sem rekstraraðilar í Grindavíkurbæ hafa farið fram á. Þau hafa farið fram á að horft sé til langtímaúrræða fyrir fyrirtæki á þrennan hátt.
1. Sjávarútvegsfyrirtækjum og þeim fyrirtækjum sem eru í hafnartengdri starfsemi sé gert kleift að starfa með því að laga innviði og tryggja verðmætabjörgun þegar atburður verður.
2. Skoðað sé hvernig hægt sé að styðja við þau fyrirtæki sem geta flutt starfsemi sína, en viðskiptasambönd margra þeirra eru í hættu vegna þess langa tíma sem hefur liðið og eru jafnvel glötuð.
3. Farið verði í uppkaup á atvinnuhúsnæði og rekstrartengdum fjármunum.
Við erum í rauninni aðallega að ræða lið tvö og þrjú núna. Það sem stendur til boða er aukin skuldsetning á Seðlabankavöxtum sem eru 9% í dag. Þeim er boðið upp á lán til sex ára, allt að 49 milljónum, sem þau þurfa að byrja að greiða til baka eftir þrjú ár. Samkvæmt reiknivél Landsbankans eru afborganir af 40 millj. kr. láni til sex ára um 920.000 kr. á mánuði. Ef ekki er greitt af láninu fyrstu þrjú árin hljóta þær afborganir að bætast ofan á höfuðstólinn, a.m.k. 28 milljónir. Miðað við það þurfa fyrirtæki sem nýta sér þessi lán að greiða tæplega 78 milljónir á þremur árum þegar þar að kemur. Samkvæmt reiknivél Landsbankans væri afborgun þess rúmlega 2 milljónir á mánuði. Ég ræddi við einn forsvarsmanna fyrirtækjaeigenda í gær og spurði hvort þetta væri samt ekki betra en ekkert. Svarið við því var nei, þetta er eiginlega verra en ekkert. Er þetta það eina sem rekstraraðilar í Grindavík mega vænta og er ekkert komið frá Grindavíkurnefnd varðandi þetta mál?