155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum nú sem betur fer farin að sjá vaxtalækkunarferlið hefjast og vonandi, með skynsamlegri afgreiðslu fjárlaga í þinginu á næstu vikum, munum við styðja við það ferli þannig að við munum sjá fljótlega betri stöðu hvað varðar þessa útreikninga hv. þingmanns sem miða við stöðuna eins og hún er í dag. En hún horfir til betri vegar. Það er hins vegar þannig að það hefur heilmikil vinna verið í gangi hjá Grindavíkurnefndinni er varðar marga þætti og það eru einfaldlega verkefni sem eru þess eðlis að þau kalla á að það sé meirihlutaríkisstjórn í landinu eða stjórn sem starfar í umboði nýs meiri hluta. Kosningar eru eftir innan við 40 daga og eðlilegt að slíkar ákvarðanir bíði nýrrar ríkisstjórnar.