155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, við höfum eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson sagði hér áðan öll verið sammála um að styðja við rekstraraðila eða styðja við Grindavík en það hefur gengið mjög tregt með rekstraraðilana. Og eins og ég segi er þetta frumvarp bara engan veginn í samræmi við það sem óskað hefur verið eftir. Að taka lán á háum vöxtum er einfaldlega það að greiða hjálpina sjálfur. En hvort við getum verið bjartsýn varðandi vaxtalækkunarferlið, ég veit það ekki. 0,25% eftir tvö ár á þessum háu vöxtum er alveg gríðarlega lítið skref sem mikil trú er lögð í og ég tala nú ekki um þar sem þetta ætti að vera enn þá meira. Ég geri mér ekki einu sinni grein fyrir því hvort við séum komin í eitthvert ferli eða hvort Seðlabankinn muni nú grípa tækifærið vegna óvissu í þjóðfélaginu og hækka vexti aftur eða halda þeim bara þarna. Vextir eru gríðarlega háir. Það er bara raunveruleikinn. Það er ekkert annað sem ég get miðað við hérna í stólnum í dag vegna þess að ég hef ekki hugmynd um hvað er að fara að taka við. Og heyrði ég líka rétt hjá ráðherra áðan í svari til hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar að núna þurfi rekstraraðilar í Grindavík að bíða eftir lausnum Grindavíkurnefndar þangað til ný ríkisstjórn er komin til valda?