stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Það er auðvitað þannig að það þarf að bregðast við öllu því sem er neyð og eðlilegt að starfsstjórn sinni í samstarfi við þingið. Og það mun ekki standa á þeim sem hér stendur að gera það. Hins vegar er eðlilegt að stefnumörkun til lengri tíma, sem grundvallast á vinnu sem er búin að standa yfir í marga mánuði af hálfu Grindavíkurnefndarinnar, fari til nýrrar ríkisstjórnar og að hún fjalli um það. Þetta segi ég vegna þess að við höfum séð það með því að fylgjast með afdrifum fólks — við birtum síðast frétt um það í ágúst á vef Stjórnarráðsins og munum væntanlega fljótlega birta frétt um það — að þær aðgerðir sem við höfum verið að nota hafa nýst gríðarlega vel en sókn í að nýta þessi úrræði, hafa farið minnkandi vegna þess að menn eru komnir á nýjan stað. Og þess vegna, varðandi stefnumörkun til lengri tíma, er búið að taka núna gríðarlega stóra ákvörðun um að opna Grindavík fyrir starfsemi. Það mun líka hafa áhrif á hvað eðlilegt er að næstu skref verði. Þess vegna þarf einfaldlega að leggjast vel yfir það. Það er held ég ekki hægt að segja að það sé eðlilegt að ríkisstjórn sem er að fara frá eða starfsstjórn fari í þá vinnu. Það er einfaldlega bara þannig að það eru kosningar 30. nóvember og við verðum að undirbúa okkur undir að ef eitthvað óvænt kemur upp á sem við þurfum að grípa inn í þá held ég að við séum öll með skilning á því að við þurfum að gera það. En stefnumörkun til lengri tíma sem kallar á fjárskuldbindingar til lengri tíma eða aðrar afleiðingar til lengri tíma er einfaldlega ekki á verksviði starfsstjórnar, nema upp komi slíkar aðstæður að þær krefjist þess að brugðist sé við. Og þá mun ekki standa á okkur og ekki þeim sem hér stendur.