stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Virðulegur forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka fyrir að fá tækifæri til að ræða Grindavík einu sinni enn og vonandi munum við halda áfram að ræða Grindavík. Við fögnum þeim mikilvæga áfanga að búið sé að opna Grindavík að nýju en við vitum öll að verkefnin þar eru mörg og alls konar.
Mig langar að nefna að eftir að ég gekk til náða í gær þá fór ég að hlusta á Lestina en þar var verið að ræða við Grindvíkinga sem höfðu tjáð sig fyrir ári síðan og voru að tjá sig ári seinna um hvernig árið hefði verið og upplifun sína af þessum atburðum sem áttu sér stað. Ég verð, virðulegur forseti, að fá að lýsa aðdáun minni á því æðruleysi sem fólk er að sýna við þessar ótrúlegu kringumstæður sem það er að ganga í gegnum og upplifa. Mér fannst fólk vera bara auðmjúkt og þakklátt fyrir þann stuðning sem það hafði haft en auðvitað höfðu þessir einstaklingar ýmislegt fram að færa sem væri rétt fyrir okkur að skoða frekar. Maður finnur það svo vel í þessari Grindavíkursál sem er að birtast okkur út um allt, í gegnum körfuboltaliðið þeirra, fótboltaliðið þeirra, að Grindvíkingar ná að sameinast og hittast og fylgja liðunum sínum eftir og halda áfram að virkja sjálfsmyndina sína í gegnum þetta. Þetta skiptir allt máli upp á framhaldið, að fólk sé ekki algerlega rifið upp með rótum og að menn finni einhverjar tengingar í gegnum þetta. En það er auðvitað búið að rífa Grindavíkurfólkið upp með rótum. Það er bara þannig. Fólk hefur verið flutt í önnur sveitarfélög vegna þess að hingað til hefur ekki verið hægt að búa í Grindavík
Ég ætla ekki að gera athugasemdir við þetta frumvarp frekar en ég hef gert athugasemdir við önnur frumvörp, vegna þess að þetta er allt af hinu góða, við erum á réttri leið. En eins og hér hefur verið rætt er ýmislegt sem hægt væri að gera betur. Eins og hæstv. ráðherra nefndi þá er það ekki verkefni starfsstjórnar að leggja til einhver úrræði sem krefjast mikilla útgjalda eða að standa fyrir auknum kostnaði heldur hitt, að vera bara tilbúin fyrir hugsanlega atburði sem gætu verið að skella á samfélaginu innan skamms. Við þurfum að vera tilbúin í það.
Við þingmenn sem mættum til Grindavíkur í kjördæmaviku áttum þess kost að sjá hvað er í raun og veru búið að gera hvað varðar varnir í kringum bæði Grindavík og orkuverið. Það er aðdáunarvert að sjá þetta en um leið ógnvekjandi að sjá þetta mikla hraun sem hefur runnið þarna og hvað hefði gerst ef slíkir varnargarðar hefðu ekki verið byggðir og ég er þakklátur fyrir að við höfum staðið saman að byggingu þeirra. En auðvitað viljum við og fleiri að hlutirnir gerist hraðar.
Það sem ég er kannski að velta fyrir mér í þessu frumvarpi eru vaxtakjör þeirra sem geta notið þessara lána og síðan tímalengdin á þeim. Þarna er talað um að lánstíminn sé að hámarki 72 mánuðir, eða sex ár, og það þurfi að borga þetta upp síðustu þrjú árin af lánstímanum. Þetta er næstum eins og kúlulán í mínum huga, að þú takir lán og svo þarftu bara að borga þetta eins og Visa-raðgreiðslur. Þetta eru harðir skilmálar, finnst mér, og ég myndi leggja til að nefndin myndi skoða þá eitthvað frekar.
Við fundum það líka í þessari kjördæmaviku, þau okkar sem mættu til Grindavíkur, að það var þungt í mörgum hljóðið og maður heyrir núna á samfélagsmiðlum að mörgum finnst þetta frumvarp ekki uppfylla þeirra þarfir, fólk sé nú þegar bundið í báða skó með lán sem það hafði tekið vegna atvinnustarfsemi í Grindavík og sé kannski af veikum mætti að reyna að koma upp atvinnustarfsemi annars staðar. Það að fara að bæta á sig skuldum sé ekki eitthvað sem sé inni í myndinni fyrir fólk í raun og veru. Þá veltir maður fyrir sér hverjir það verða sem geta nýtt sér þetta. Kannski aðilar sem standa vel og skulda lítið. En kannski eiga þeir aðilar sem voru kannski með einhverja stóra skuldabyrði á sínum fyrirtækjum í erfiðleikum með að standast þetta til viðbótar við það sem á þeim hvílir.
Mig langar líka bara að árétta þessi atriði sem ráðherrann nefndi hér, að þingið er búið standa vel með Grindvíkingum, bæði í launastuðningi og húsnæðisstuðningi og þetta skiptir allt máli, en við vitum, eins og hér var nefnt og ég heyrði í útvarpinu í gær, í Lestinni, að fólk hefur athugasemdir fram að færa varðandi Þórkötlu. Það liggur alveg fyrir að margir eru ósáttir við þá niðurstöðu sem þeir hafa fengið í gegnum Þórkötlu. Aðrir hafa ekki fengið þá úrlausn sem þeir þurfa og það er kannski líka vegna harðra skilmála sem ríkja hjá Þórkötlu. Vonandi mun Grindavíkurnefndin, eins og var gefið í skyn á fundinum uppi í Grindavík, gera tillögur um að skoða að það verði fleiri íbúðakostir, eða tegundir húsnæðis eða íbúða, greiddir upp í gegnum Þórkötlu. Það skiptir máli. Það er fullt af fólki sem átti í lífeyrissjóði í gegnum íbúðir og er núna án þess lífeyrissjóðs. Það er líka fullt af fólki sem var bara að byggja og var ekki flutt í húsnæðið eða byggingaraðilar sem voru að byggja og fá ekki sitt bætt. Það eru líka smáfyrirtæki sem mega bara ekki vera í starfsemi af því að það er búið að girða fyrirtækið af. Þetta eru hlutir sem við verðum að halda áfram að skoða.
Ég vil líka nefna ágætishluti eins og það að ráðherra skrifaði undir samning um fjölgun íbúða uppi í Ásbrú og ekki vanþörf á vegna þess húsnæðisskorts sem er til staðar og þess þrýstings sem skapaðist á markaði þegar Grindvíkingar þurftu að koma inn á markaðinn og fara að kaupa sér eignir. Þarna fannst mér vanta að það væru gerðir sömu hlutir eins og gerðir voru í Vestmannaeyjagosinu, að ráðist yrði í uppbyggingu svokallaðra viðlagasjóðshúsa eða einingahúsa. Það hefði getað átt sér stað um allt land og hefði svo sem ekki sett mikla pressu á samfélögin ef við hefðum gert þetta bara um leið. Markaðurinn getur ekki alltaf stjórnað. Við þurfum stundum að taka fram fyrir hendurnar á markaðnum og það á að beita félagslegum lausnum til að standa með fólki eins og í Grindavík sem er að upplifa mikla erfiðleika.
Virðulegur forseti. Þetta mál fer eins og mörg sem hér eru til umræðu í dag til hv. efnahags- og viðskiptanefndar þar sem verður farið yfir málið og umsagnaraðilar fengnir fyrir nefndina. Eins og ráðherrann segir þá er lítið hægt að pönkast í honum þessa dagana og sitjandi starfsstjórn, en við munum að sjálfsögðu gera það ef hann verður ráðherra áfram.