155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

298. mál
[12:57]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir að það sé komið eitt úrræði til viðbótar inn í þingið fyrir fyrirtækin í Grindavík sem eru nú að kljást við alls konar, fyrirtækin sem voru starfandi og eru um 140 eða 150. Aðstæður þeirra eru misjafnar, eiginlega jafn misjafnar og þau eru mörg, þannig að það þarf fjölbreytt og mörg úrræði.

Ég ætla kannski ekki að fara í einstök atriði þessa frumvarps heldur setja það bara í samhengi sitt og hvetja nefndina til að heyra í fulltrúum fyrirtækjanna í Grindavík hvort þetta sé eitthvað sem gagnast eða hvort það eigi að laga eitthvað til og aðlaga aðstæðum betur. Það eru engir aðrir en þeir sem eru í aðstæðunum sjálfir sem vita það betur og skilja. Í öllum þessum málum í Grindavík hefðu nú oft heilt yfir mátt vera meiri samskipti á vettvangi og við samfélagið.

Ég vil þó segja að áhættan af þessum lánum fyrir ríkið mun minnka töluvert og gagnið af þessu mun líka aukast mun meira ef við teiknum svolítið heildarmyndina upp fyrir atvinnureksturinn. Það var opnað til Grindavíkur á mánudaginn, sem við fögnuðum alveg gríðarlega og er mjög stórt og mikilvægt skref af því að flestöll fyrirtækin sem aðstæður hafa til, sem á ekki við um öll fyrirtæki, eru bara svolítið að kalla eftir fyrirsjáanleika og verkfærakistu þannig að þau geti bjargað sér sjálf og tekið ákvarðanir miðað við þær aðstæður sem eru. Það er bara nákvæmlega það sem var gert fyrir níutíu og eitthvað prósent af íbúunum þegar þau fengu svör um eigið fé í húsnæðinu sínu, að húsnæðið yrði keypt að uppfylltum vissum skilyrðum og þau myndu ákveða hvert þau myndu flytja og koma sér fyrir. Þannig leystist stærsti og alvarlegasti vandinn og er bara nánast kominn í lag en það eru atvik sem þarf að takast á við líka. En það skortir enn þá upp á þetta hjá fyrirtækjunum.

Nú er búið að opna og það er eiginlega bara smáávinningur af opnuninni af því að á sama tíma og er opnað þá byrjar enn og aftur úrtöluumræðan um Grindavík sjálfa; hvað þetta er hættulegt og Veðurstofan er farin að hóta því að setja þetta á hættustig í byrjun nóvember og þá er bara allt í plati einhvern veginn. Ég segi þetta af því að ég var nú þarna allan daginn í gær og er reglulega og mestu atburðirnir eru að gerast fyrir ofan Grindavík en ekki innan bæjarmarkanna. Þar getur vissulega verið hætta þegar kvikuhlaupið er en þá höfum við tíma til að bregðast við því. Fólkið þekkir aðstæður og þarf að fá tækifæri til að aðlaga sig aðstæðunum, lifa með náttúrunni. Á meðan við erum alltaf með úrtöluraddir og hótanir um að loka bæjarfélaginu sjálfu þá er svo erfitt að gera plön í atvinnulífinu og fyrirtækjunum því að þau eru ekki veðhæf og geta ekki fengið lán til að halda starfsemi sinni. Tryggingafélögin vilja ekki tryggja atvinnufyrirtækin og á meðan þau geta ekki tryggt sig og fá ekki veð þá er erfitt að reka atvinnustarfsemi. Það er bara ekki hægt. Og á meðan það er ekki hægt og á meðan alltaf er verið að hóta því að loka aftur þegar við förum á hættustig, sem geta verið 6–8 vikur án þess að nokkur atburður gerist — og allir undanfarnir atburðir hafa sýnt okkur að við höfum nægan tíma til þess að rýma og undirbúa okkur og annað slíkt án þess að eitthvað stórt gerist — þá sitjum við uppi með það að fyrirtækin lenda alltaf í verri og verri stöðu og þá þarf stuðningurinn að vera meiri og meiri, verðmætasköpunin verður minni og andleg heilsa fólksins verri og verri.

Það er flott að fá þetta í verkfærakistuna en við þurfum að hafa opnunina í alvörunni, hafa glasið hálffullt en ekki hálftómt og treysta fólkinu sem býr og lifir við aðstæðurnar til að aðlaga sig þeim. Það er allt í lagi að upplýsa um þróun kvikusöfnunar og annað en ekki að vera að tala ástandið svona niður, af því að ef allt þetta er svona hættulegt í Grindavík þá eru nú bara mjög mörg svæði á landinu sem við þurfum að loka þar sem geta komið upp flóð, eldgos, jöklar sem hreyfast einn, tvo metra á dag með fleiri hundruð manns uppi á og fleira. Við þurfum að fara að endurskoða áhættumatið víðar ef þetta er svona þarna.

Við þurfum að hafa það á hreinu hver fyrirsjáanleikinn er. Geta fyrirtækin byggt sig upp? Og ef það verður lokað ef það kemur stóratburður, hvernig ætlum við þá að taka áhættuna með þeim af því að hafa allt starfsfólkið áfram með vinnu og byggja upp atvinnustarfsemina? Við þurfum að svara því hvort rekstrarstuðningurinn sé aðlagaður miðað við það. Þá eru það fyrirtæki sem eru starfandi núna en ekki miðað við 10. nóvember. Svo eru fyrirtæki sem hafa verið afgirt af stjórnvöldum í heilt ár með sprungu í lóðinni, ekki vatn, ekki hita, fá ekki að nýta húsnæðið en það hefur enginn svarað þeim. Við þurfum að svara því hvernig við ætlum að leysa þetta.

Ég ætlaði að tala svolítið um fyrirtækin núna. Ég gæti haldið langa ræðu en við þurfum að athuga núna fyrir kosningarnar líka lagfæringar á lögunum um Þórkötlu. Það er undantekningarúrræði sem löggjafinn ætlaði augljóslega ná utan um, t.d. þegar foreldrar voru að hjálpa börnunum sínum að kaupa hús og foreldrarnir voru þinglýstir eigendur en höfðu ekki lögmæta ástæðu til að flytja lögheimilið og þá hefur Þórkatla ekki lagaheimild en andi laganna segir skýrt að þetta eigi að falla undir undanþáguna. Ég trúi ekki öðru en að þingið geti sammælst um að laga svona hluti áður en við förum hér í frí.