155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

brottfall laga um Bankasýslu ríkisins.

299. mál
[13:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi sem felur í sér niðurlagningu Bankasýslu ríkisins. Eins og þingmenn þekkja var Bankasýsla ríkisins stofnuð með lögum árið 2009 með það að markmiði að stofnunin myndi ljúka störfum eigi síðar en fimm árum eftir stofnun. Þróunin varð þó önnur og hlutverk stofnunarinnar hefur breyst umtalsvert frá upphaflegum tilgangi.

Árið 2015 var lagt fram frumvarp um að leggja Bankasýsluna niður og fela fjármálaráðherra að fara með eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, en sú tillaga var ekki afgreidd af hálfu Alþingis. Árið 2019 voru svo gerðar breytingar á ákvæði um tímaramma stofnunarinnar sem var þá fellt brott og í stað þess sett bráðabirgðaákvæði sem kvað á um að stofnunin yrði lögð niður þegar verkefnum hennar væri lokið. Síðan þá hafa orðið verulegar breytingar á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Fyrr á þessu ári voru síðan samþykkt lög um ráðstöfun eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka þar sem hlutverk Bankasýslunnar varðandi sölu eignarhluta var fellt niður. Jafnframt voru lög um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum felld brott. Stofnunin hefur því í dag afar takmarkað hlutverk sem afmarkast við að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum; í Landsbankanum, Íslandsbanka og Sparisjóði Austurlands.

Það er ljóst að þörfin fyrir áframhaldandi starfsemi Bankasýslu ríkisins hefur minnkað verulega. Eins og ég nefndi áðan hefur hlutverk hennar verið takmarkað og nú er komið að þeim tímapunkti að leggja stofnunina niður. Lagt er til að meðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum verði færð undir fjármála- og efnahagsráðuneytið, í samræmi við það almenna fyrirkomulag sem gildir um meðferð eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum samkvæmt lögum um opinber fjármál. Eignarhlutur ríkisins í fjármálafyrirtækjum færi þá í sambærilegt umhverfi og önnur stór ríkisfyrirtæki eins og Landsvirkjun, Landsnet og Isavia, en samtals eru um 40 fyrirtæki í umsjá ráðuneytisins.

Tekið hefur verið til gagngerrar skoðunar hvernig best er að halda utan um þau verkefni sem Bankasýslan hefur sinnt. Niðurstaðan er að ráðuneytið, sem þegar fer með eignarhald í öðrum fyrirtækjum í eigu ríkisins, taki við þessum verkefnum. Bankasýslan lýtur yfirstjórn ráðherra og starfar þannig á ábyrgð hans. Með frumvarpinu er lagt til skref í átt að einföldun stjórnsýslunnar hvað varðar eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum. Í frumvarpinu er lagt til að viðhalda því fyrirkomulagi að sérstök valnefnd leggi fram tillögur um einstaklinga í stjórnir þeirra fjármálafyrirtækja sem eru í eigu ríkisins. Þetta fyrirkomulag hefur almennt reynst vel og því er lagt til að viðhalda því með þeim hætti að það gildi ekki aðeins fyrir fjármálafyrirtæki í ríkiseigu heldur einnig fyrir önnur stærri ríkisfyrirtæki. Nánar verður kveðið á um starfsreglur valnefndar og fyrirkomulag tilnefninga í eigendastefnu ríkisins sem sett er á grundvelli laga um opinber fjármál. Loks vil ég undirstrika að þessi breyting, að færa meðferð eignarhluta til ráðuneytisins, er í samræmi við það sem almennt tíðkast innan OECD-ríkjanna.

Frú forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að aflokinni þessari umræðu.