brottfall laga um Bankasýslu ríkisins.
Virðulegi forseti. Eins og kemur fram, og ég er sammála hv. þingmanni, þá hefur Bankasýslan umbreyst og verkefnin gjörbreyst. Bæði er búið að fella út að hún fari með sölu eignarhluta í fjármálafyrirtækjum, búið fella út lögin um það. Það eru í raun og veru lög sem Alþingi setur í hvert sinn eins og gert er í tilvikinu með fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka. Samkvæmt þeim er verkefnið í rauninni fyrst og fremst orðið að fara með þennan valnefndarrétt í stjórnir þessara þriggja lánastofnana, á meðan ríkið á eitthvað í Íslandsbanka og svo seinna bara í tveimur og eftir atvikum sífellt færri ef til að mynda Sparisjóður Austurlands færi í söluferli sem hefur svo sem komið til tals.
Varðandi nákvæmlega útfærsluna er hér vísað í lög um opinber fjármál, hvort það rúmist innan þeirra að setja þá útfærslu að hafa aðkomu þingsins að þeirri valnefnd með einhverjum hætti. Mér finnst það bara koma vel til greina og sjálfsagt að skoða hvort það rúmist innan þeirra laga eða hvort útfærslan þurfi að vera með tilteknum hætti. En ég er alla vega sammála hv. þingmanni að það er mikils vert að um slíka valnefnd ríki ákveðinn trúverðugleiki og það sé ekki í raun og veru þannig að því sé haldið fram að fjármálaráðherra hvers tíma sé að stjórna því hverjir sitji í þessum stjórnum. Þannig að ég held að það sé mikilvægt að leggjast yfir útfærsluna og tek undir það með hv. þingmanni.