brottfall laga um Bankasýslu ríkisins.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tel nefnilega að það sé afar mikilvægt að við náum þessu. Og af því að það tilheyrir jú opinberum fjármálum hvernig farið er með valið á fjármálaráði þá hygg ég að við ættum að geta fundið flöt á þessu. Þetta snýst auðvitað fyrst og fremst um þennan trúverðugleika og það að einstaklingur sitji einhvern veginn ekki uppi með þetta, hver svo sem hann er á hverjum tíma. Í ljósi allrar þeirrar reynslu sem við höfum haft í gegnum árin varðandi þessi mál, þrátt fyrir að þessum fyrirtækjum sem væntanlega þarf að tilnefna í fari fækkandi, þá þarf engu að síður á meðan svo er að ríkja friður um þessa skipun. Þannig að ég hvet nefndina til þess að skoða þetta vel. Þetta er auðvitað eitt af þessum málum sem þarf að afgreiðast hratt ef það á að taka gildi núna um áramótin þannig að ég bara mælist til þess að nefndin skoði þennan möguleika. Ég heyri að ráðherra tekur vel í það þannig að ég held að það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að reyna að búa til enn meiri, svona eins og maður segir, frið um slíka nefnd eins og hér er lagt til að verði.