155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

útlendingar.

302. mál
[13:14]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Lögð er til breyting sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta verði lengdur úr þremur árum í fimm.

Sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta er ætluð sem viðbragð stjórnvalda við tímabundnum aðstæðum þar sem hópur einstaklinga flýr afmarkað landsvæði og þarf á vernd að halda. Þessi mál eru frábrugðin hefðbundinni efnismeðferð umsókna um vernd að því leyti að slakað er á rannsóknarskyldu stjórnvalda þar sem fjöldi umsækjenda í slíkum aðstæðum getur verið ófyrirsjáanlegur, sem kallar á sveigjanlegt og einfalt umsóknarferli.

Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu leiddi til fjölgunar á umsóknum úkraínskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd á Íslandi og í Evrópu. Í kjölfarið beittu íslensk stjórnvöld í eitt ár heimild ráðherra um veitingu sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta. Þeir einstaklingar sem falla undir ákvæðið fá útgefið mannúðarleyfi. Stríðið hefur staðið yfir í tæplega þrjú ár og ekki sér fyrir endann á átökum í landinu. Frá því að átökin hófust hefur fjöldi umsókna hér á landi um vernd frá úkraínskum ríkisborgurum verið umtalsverður. Með vísan til yfirstandandi átaka í Úkraínu hafa stjórnvöld nú tvívegis framlengt beitingu ákvæðisins og mun sú ráðstöfun að öllu óbreyttu renna út í mars á næsta ári.

Markmið frumvarpsins er að framlengja hámarkstíma dvalarleyfa sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta úr þremur árum i fimm. Þá munu verndarhafar á grundvelli ákvæðisins búa við fyrirsjáanleika og átt kost á því að framlengja dvalarleyfin sín án þess að sækjast eftir framlengdri dvöl á öðrum lagagrundvelli. Vert er þó að taka fram að með frumvarpinu lengist sá tími sem handhafar dvalarleyfanna munu þurfa að dvelja samfellt hér á landi áður en þeir öðlast ótímabundið dvalarleyfi, úr fjórum árum í allt að sex, en sá tími fer eftir því hvenær umsókn var lögð fram en ekki samfelldri dvöl umsækjanda hér á landi.

Nái frumvarpið ekki fram að ganga mun þessi hópur eiga rétt á efnislegri meðferð á umsókn sinn um vernd eða framlengingu á öðrum lagagrundvelli strax á næsta ári, sem yki verulega álag á verndarkerfið. Þá skal því haldið til haga að án fyrirliggjandi lagabreytinga mun framkvæmd um sameiginlega vernd hér á landi skera sig úr miðað við framkvæmd á Norðurlöndum og í ríkjum Evrópusambandsins. Lagabreytingin mun ekki bara tryggja samræmda framkvæmd og aukinn fyrirsjáanleika fyrir handhafa verndar á grundvelli fjöldaflótta heldur einnig veita stjórnvöldum svigrúm til að leggja ítarlegra mat á aðstæður í heimaríki umsækjenda sem hægt er að byggja á við ákvörðun um endurnýjun. Þá vil ég ítreka að um heimildarákvæði er að ræða og ekki er lögð skylda á stjórnvöld að veita umrædd dvalarleyfi til fimm ára.

Tæplega 5.000 einstaklingar hafa fengið vernd á grundvelli ákvæðisins og komi ekki til lagabreytinga munu þeir allir eiga rétt á efnislegri meðferð á umsóknum sínum um alþjóðlega vernd strax á næsta ári. Leiða má líkur að því að flestir ef ekki allir muni nýta þá leið enda sér ekki fyrir endann á átökunum. Sú þróun myndi leiða af sér töluverðan kostnað fyrir ríki og sveitarfélög við þjónustu og vinnslu slíkra umsókna að ótöldum áhrifum á afgreiðslutíma hjá bæði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, nokkuð sem lögð hefur verið mikil áhersla á að bæta á liðnum árum.

Virðulegi forseti. Ég hef farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins, en að öðru leyti vísast til greinargerðar frumvarpsins og athugasemda við ákvæði þess.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.