155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

útlendingar.

302. mál
[13:19]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég vil byrja á að taka fram að ég styð þetta mál sannarlega eins og ég geri ráð fyrir að við gerum öll. Mig langar til að benda á nokkur atriði sem koma upp í hugann við meðferð máls af þessu tagi. Það sem verið er að leggja til er að svokölluð tímabundin vernd fólks á flótta verði í rauninni framlengd. Það er auðvitað vel, þar sem þeir hópar sem kannski helst eiga þarna undir eins og staðan er eru því miður enn þá í mikilli óvissustöðu. Það sem mig langar til að benda á er í fyrsta lagi nokkuð sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lagt áherslu á um árabil, ef ekki áratugi, og það er að ríki sem taka á móti fólki á flótta bjóði flóttafólki í raun upp á varanlegar lausnir, ekki tímabundna vernd. Þessi tímabundnu úrræði sem hafa verið hönnuð á Evrópuvettvangi eru í raun ekki góð leið til að styðja fólk sem er að flýja stríðsátök, sérstaklega ekki þegar það er orðið eitthvað lengra en nokkrar mínútur, sem er nú því miður oftast tilfellið. Ástæðan er fyrst og fremst sú að flótta frá heimaríki fylgir gríðarlega mikil óvissa, gríðarlega mikið óöryggi og það er eðli málsins samkvæmt erfitt fyrir viðkomandi einstaklinga að finna fyrir einhvers konar stöðugleika og öryggi í lífi sínu.

Það sem við vitum hins vegar og ég held að við vitum öll og skiljum og getum tengt við er að það er erfitt að koma undir sig fótunum, það er erfitt að lifa eðlilegu lífi, það er erfitt að læra, það er erfitt að vera vinnufær, það er erfitt að vera til undir stöðugri óvissu. Þegar fólki er veitt tímabundin vernd þá felast í því ákveðin skilaboð. Skilaboðin eru í grunninn jákvæð: Já, við ætlum að leyfa þér að vera, við ætlum að skjóta yfir þig skjólshúsi en einungis tímabundið þangað til við getum vísað þér burt. Það sem fólk kannski gleymir oft varðandi dvalarleyfi sem veitt eru til lengri tíma er að þó að einstaklingur fái dvalarleyfi, segjum til æviloka þá þýðir það ekki að hann muni dvelja til æviloka. Fólk getur alltaf farið til síns heima og það er mjög stór hluti flóttafólks sem þráir ekkert heitar en að komast aftur heim. Velflest viljum við vera heima. Þegar fólk neyðist til að flýja heimkynni sín þarf það hins vegar stundum að finna nýtt heima og þó að það sé tímabundið þá þarf það samt að vera einhvers konar tilfinning um stöðugleika, um einhvern fyrirsjáanleika og annað. Það sem Flóttamannastofnun hefur þess vegna lagt til er í rauninni að komið sé fram við fólk eins og fólk og því gefið sjálfsvald um það hvenær það snýr til baka, hvenær það er reiðubúið að gera það, og það er mjög jákvætt að styðja fólk til þess. En það að skikka fólk til að fara á einn stað eða annan er ekki það sama og að styðja það til þess að gera það.

Það sem ég hefði viljað sjá er auðvitað að mál fólks sem er að flýja stríðsástand væru skoðuð með því hugarfari að fólk þurfi stöðugleika, þurfi fyrirsjáanleika, það þurfi framtíð. Þetta á ekki síst við um börn sem þurfa að koma sér fyrir í nýju landi, læra nýtt tungumál, eignast nýja vini. Það er ofboðslega þungbært, sérstaklega fyrir barn en samt líka fyrir okkur öll, að hafa það alltaf yfir höfði sér að þurfa að yfirgefa það allt saman. Stundum er fólk reiðubúið að gera það og oft yrði þá stór hluti fólks reiðubúinn að prófa eitthvað nýtt og flytja á milli landa. Sumt fólk býr í hinum og þessum löndum og það eru til börn sem alast upp í hinum og þessum löndum og ráða ágætlega við það en við erum öll auðvitað bara mjög ólík. Það sem skiptir máli er að fólk finni að það hafi einhvers konar stjórn á lífi sínu.

Þessi tímabundna vernd sem Evrópa hefur búið til fyrir fólk sem er að flýja stríðsátök kemur m.a. til af nokkru sem ég held að komi mörgum á óvart, sem er það að fólk sem er að flýja almennt hættuástand í heimaríki sínu fellur ekki undir skilgreiningu flóttamanns samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Flóttamaður samkvæmt skilgreiningu flóttamannasamningsins er í rauninni að flýja persónulegar ofsóknir, annaðhvort af hálfu stjórnvalda eða sem stjórnvöld geta ekki verndað viðkomandi gegn; persónulegar ofsóknir á grundvelli tiltekinna þátta sem þar eru taldir upp. Fólk sem er að flýja almenn stríðsátök eða almennt hættuástand í heimaríki fellur ekki undir þá skilgreiningu að jafnaði. Þess vegna var á Evrópuvettvangi komið á hugtaki, sem ég tel vel og tel að hefði farið betur til þess að taka á fjöldaflótta frá t.d. Úkraínu og öðrum stríðssvæðum, sem heitir viðbótarvernd. Það er á ensku, með leyfi forseta, „susbsidiary protection“ sem er í rauninni vernd sem er búin til vegna þess að flóttamannasamningurinn nær ekki yfir stóran hluta fólks sem er að flýja stríðsátök. Þessi tímabundna vernd hefur auðvitað þann tilgang og markmið að stytta málsmeðferðartíma þannig að þú þurfir í rauninni ekki annað en ríkisfang frá þessu tiltekna svæði eða að vera frá þessu tiltekna svæði til að eiga rétt á verndinni. Þetta styttir augljóslega málsmeðferðartíma þar sem það tekur ekki marga mánuði að kanna aðstæður og komast að niðurstöðu um það hvort fólk uppfylli skilyrði. Þessu gætum við auðvitað beitt meira. Það hefur verið fjöldaflótti frá ýmsum svæðum en, eins og hæstv. ráðherra sagði í ræðu sinni áðan, er auðvitað oft horft til framkvæmdar í öðrum ríkjum þegar tekin er ákvörðun um hvort það eigi að beita þessu ákvæði eða ekki.

Ég fagna svo sem þessari breytingu en hugsunin að baki breytingunni og þessari reglu yfirhöfuð er kannski ekki alveg sú gagnlegasta. Við þurfum að bjóða fólk á flótta velkomið, með opinn faðminn, með það fyrir augum að það geti orðið hluti af samfélaginu. Hagsmunir okkar allra snúa líka að því. Það gefur augaleið að einstaklingur sem sér fram á að þurfa að fara eftir eitt ár er kannski ekki að fara að leggja mikla vinnu í það að læra tungumál sem um hálf milljón manna talar á heimsvísu að móðurmáli, ef mér skjöplast ekki, með öllum fyrirvara um þær tölur sem ég hef ekki kynnt mér sérstaklega. Tungumálið er lykillinn að því að verða hluti af samfélaginu. Þetta er þáttur sem ég held að við séum ekki alveg nógu meðvituð um að skipti máli þegar fólk er að læra tungumál. Til þess að geta lært nýtt tungumál þarftu að finna fyrir öryggi, þú þarft að hafa hugarró. Þetta er auðvitað sérstaklega erfitt fyrir fullorðið fólk, það er auðveldara fyrir börn að læra nýtt tungumál. En að verða hluti af samfélagi er okkur öllum gríðarlega mikilvægt, að finna að við tilheyrum, að finna að við séum velkomin. Þetta á við um okkur öll. Ég held að við getum öll tengt við þetta og skilið. Ef við erum í aðstæðum þar sem við glímum þegar við gríðarlegan ótta um okkar heimkynni, um allt sem við þekkjum, eins og fólk á flótta glímir við, þá er lágmark að þar sem fólk finnur skjól sé því boðið raunverulegt öryggi og raunveruleg framtíð, hvað sem svo verður.

Ég vil hvetja stjórnvöld og aðra og Alþingi og okkur öll til að reyna að búa þannig um kerfið okkar að við séum raunverulega að bjóða fólk velkomið og ekki að senda þau skilaboð að það sé með hinum og þessum fyrirvörum, sem eru eitthvað umfram aðra fyrirvara sem við setjum varðandi það hvernig við hegðum okkur í almennu samfélagi, og bjóðum fólk velkomið, bjóðum því upp á framtíð, komum fram við það eins og fólk, ekki eins og dýr í leit að skjóli.

Ég styð þetta mál en tel forsendurnar að mörgu leyti rangar og hvet okkur öll til að endurskoða þær.