hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Frumvarpið er lagt fram í kjölfar samþykktar stjórnar og sjóðsráðs Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á niðurstöðum 16. almennu endurskoðunar á kvóta sjóðsins. Með frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði veitt heimild til að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og að Seðlabanki Íslands leggi fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans. Seðlabankinn fer með fjárhagsleg tengsl við sjóðinn skv. 2. mgr. 31. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er fjármagnaður með kvótaframlögum aðildarríkjanna. Kvótar ákvarða útlánagetu sjóðsins og hve há lán aðildarríki geta fengið. Einnig ráða kvótar atkvæðavægi ríkja í sjóðsráði og í framkvæmdastjórn sjóðsins. Kvótar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru almennt endurskoðaðir á fimm ára fresti. Tillaga um breytingu á kvóta verður aðeins samþykkt með stuðningi ríkja sem hafa minnst 85% atkvæðamagn á bak við sig. Að auki verður kvóta aðildarríkis ekki breytt nema með samþykki viðkomandi ríkis. Við síðustu almennu endurskoðun á kvóta sjóðsins var samþykkt að hækka heildarkvóta sjóðsins og kvóta allra aðildarríkjanna um 50%. Aðildarríkjum var veittur frestur til 15. nóvember 2024 til að samþykkja hækkun á eigin kvóta. Með ákvörðuninni hækkar heildarkvóti sjóðsins úr 476,8 milljörðum SDR í 715,7 milljarða SDR. Þar af hækkar kvóti Íslands úr 321,8 milljónum SDR í 482,7 milljónir SDR. Seðlabankinn fer með atkvæði Íslands fyrir hönd ríkissjóðs og greiddi atkvæði með niðurstöðunni í sjóðsráði eftir samráð við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Til þess að kvóti Íslands hjá sjóðnum hækki í samræmi við framangreinda niðurstöðu þarf íslenska ríkið að samþykkja hækkunina. Frá árinu 1965 hefur framkvæmdin verið sú að Alþingi veiti ríkisstjórninni heimild með setningu sérlaga til að samþykkja viðkomandi kvótahækkun. Síðast var þetta gert með lögum nr. 5/2012 sem kveða á um heimild ríkisstjórnarinnar til að hækka kvóta Íslands úr 117,6 milljónum SDR í þessar 321,8 milljónir SDR, sem það er í dag. Með samþykki kvótahækkunarinnar mun skuldbinding Íslands aukast um 160,9 milljónir SDR eða um 30 milljarða. Þar af greiðir Seðlabankinn 40,2 milljónir SDR eða rúmlega 7 milljarða í erlendri mynt til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú fjárhæð mun teljast sem gjaldeyrisinnstæða Seðlabankans. Að auki verða 120,7 milljónir SDR, eða rúmlega 22 milljarðar kr., færðar sem krónuinnstæða sjóðsins í Seðlabankanum. Framlagið myndar sérstaka gjaldeyrisinnstæðu hjá sjóðnum og telst áfram til gjaldeyrisforða Seðlabankans. Sá hluti framlagsins sem er í íslenskum krónum er ekki inntur af hendi heldur eignast Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kröfu á innstæðu í Seðlabankanum sem nemur umræddri fjárhæð. Ráðstöfunin hefur hvorki bein áhrif á útgjöld né skuldbindingar A-hluta ríkissjóðs.
Ávinningur Íslands af því að samþykkja kvótahækkunina felst í fyrsta lagi í því að viðhalda óbreyttu atkvæðavægi ríkisins innan sjóðsins. Í öðru lagi geta aðildarríki sjóðsins óskað eftir fjárhagsaðstoð frá sjóðnum ef þau lenda í greiðslujafnaðarvanda. Lánsfjárhæðir sjóðsins miðast við tiltekið margfeldi af kvóta viðkomandi ríkis sem er breytilegt frá einum lánaflokki til annars. Ísland hefur nokkrum sinnum tekið lán hjá sjóðnum, síðast árið 2008. Aðildarríkjum var veittur frestur til 15. nóvember til að samþykkja kvótahækkunina. Á þeim grunni langar mig að hvetja til þess að Alþingi og efnahags- og viðskiptanefnd, sem fær málið til umfjöllunar, reyni að tryggja framgang málsins á sem skemmstum tíma.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.