hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Eins og kemur fram í frumvarpinu, varðandi mat á áhrifum, þá hefur frumvarpið hvorki bein áhrif á fjárhag hins opinbera né innlent hagkerfi. Þar kemur líka fram að ávinningur Íslands sé í fyrsta lagi sá að halda atkvæði sínu í stjórn. Þá geta aðildarríki líka óskað eftir aðstoð frá sjóðnum ef þau lenda í greiðsluvanda. Hér er verið að tala um 27, 9 milljarða greiðslu sem kvótahækkun Íslands er, 27 milljarðar miðað við gengi í lok árs 2023. Þar af greiðir Seðlabanki Íslands 7 milljarða og svo verða 22 milljarðar ef ég skil rétt, í gjaldeyrisinnstæður Seðlabankans.
Mín spurning til hæstv. ráðherra er kannski tæknileg. Erum við að tala hér um seðlaprentun? Er verið að framleiða fleiri krónur til að setja inn í þessa kvótahækkun svo að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti gefið út gjaldmiðilinn SDR, eða „Special Drawing Rights“ á ensku. Það væri gott að fá líka að vita hjá hæstv. fjármálaráðherra: Er ekki rétt skilið að kjördæmið Norðurlönd og Eystrasaltsríkin séu enn þá með stjórnarmann í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og er ekki ljóst að ekki verði breyting þar á? Ég tel að það sé alveg frábært að þessi ríki, sem eru ekki stór, ekki fjölmenn, 25 milljónir á Norðurlöndunum og sennilega 5 milljónir í Eystrasaltsríkunum, séu með stjórnarmann. Er ekki fyrirséð að það muni halda áfram? En það var aðallega spurningin um fjármögnunina sem ég hef áhuga á.