155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

35. mál
[10:47]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið. Mig langar í seinna andsvari að spyrja um samskipti fjármálaráðuneytisins og ríkisstjórnar Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Nú fengum við stuðning frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum með ráðgjöf í kjölfar hrunsins. Það væri mjög fróðlegt að vita hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafi sjálfur metið þá aðstoð, hver árangurinn hafi verið af þeirri aðstoð, hvort hann hafi verið jákvæður eða neikvæður og hversu vel íslensk stjórnvöld hafi fylgt þeirri ráðgjöf eftir. Og líka það hver samskiptin eru núna milli fjármálaráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ég veit að þeir koma með skýrslu árlega um stöðu íslensks efnahagslífs en það væri gott að fá að vita í seinna svari ráðherrans um samskiptin milli fjármálaráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.