155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

35. mál
[10:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er skemmst frá því að segja að þessi samskipti hafa verið góð. Það er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að árangurinn af þeirri aðstoð hafi í raun kallað fram breytingar á nálgun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar krísur verða, vegna þess að árangurinn var frábær. Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er það hvernig við höfum meðhöndlað ábendingar og samtal og ráðgjöf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins — þeir höfðu sjálfir sagt að Ísland væri best í bekknum, að við hefðum staðið okkur hvað best. Enda kemur það skýrt fram í skýrslunni sem kom fram í sumar, sem kom út eftir ítarlega heimsókn og viðtöl og upplýsingagjöf sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fékk hér hjá íslenskum aðilum, að það væri mat þeirra að staðan væri góð. Þróunin væri öll í rétta átt, efnahagsstefnan góð, fjármálaáætlunin, sem við kynntum í vor og samþykktum hér í vor, passlega aðhaldssöm og líkleg til að ná öllum þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Með öðrum orðum telur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að við höldum áfram að vera, svo að ég sletti nú, best í bekknum í að framfylgja þeirri skynsamlegu stefnu sem við höfðum tekið ákvörðun um og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn metur rétta, skynsamlega og líklega til að ná þeim árangri sem við erum farin að sjá í út um framrúðuna. Eins og ég hef nú stundum sagt í þessum ræðustól: Þetta er allt að koma.