155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[10:51]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, framlenging.

Sem hluti af aðgerðum til stuðnings við heimili og fyrirtæki í Grindavík var með lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar komið á laggirnar sjálfstæðum sjóði, Afurðasjóði Grindavíkurbæjar, sem skipaður er þriggja manna stjórn. Hlutverk sjóðsins er að veita rekstraraðilum sem falla undir gildissvið laganna fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar óbeint tjón á matvælum og fóðri í eigu rekstraraðila af völdum náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, þar með talið vegna rýmingaraðgerða stjórnvalda tengdum þeim.

Með því að láta hinn fjárhagslegan stuðning ná til matvæla og fóðurs, líkt og hugtökin eru skilgreind í orðskýringum laganna, var komið til móts við áhyggjur mikils meiri hluta rekstraraðila á svæðinu sem höfðu bent á mögulegt óbeint tjón á afurðum sínum af völdum náttúruhamfara. Þegar lögin voru sett var gildistíma þeirra stillt þannig upp að hann væri stuttur, eða til 31. desember 2024, eins og fram kemur í 1. gr. laganna. Í athugasemdum við ákvæðið segir að stuttur gildistími ráðist af óvissu á svæðinu en þörf fyrir framlengingu úrræðisins verði metin með hliðsjón af því hvernig jarðhræringar og eldsumbrot á svæðinu muni þróast með tímanum.

Í kjölfar þess að ríkislögreglustjóri, í samráði við ríkislögreglustjórann á Suðurnesjum, ákvað að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig var aðgangur að Grindavíkurbæ gerður hindrunarlaus frá og með 21. október síðastliðnum. Líkt og fram kom í tilkynningu framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur þá er hins vegar því miður ljóst að jarðhræringum í og við Grindavíkurbæ er hvergi lokið og að aðstæður geta breyst hratt og nauðsynlegt getur reynst að rýma bæinn og nágrenni með skömmum fyrirvara og loka á nýjan leik. Síðustu dagar sýna okkur því miður að jarðhræringum virðist því miður hvergi lokið.

Sökum framangreinds er með þessu frumvarpi lögð til sú breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar, nr. 74/2024, að gildissviðsákvæði laganna verði framlengt til 31. desember 2025 og að lögin gildi um einstaklinga og lögaðila sem stunda tekjuskattsskyldan atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi og verða fyrir tilgreindu tjóni skv. 6. gr., á tímabilinu frá og með gildistöku laganna til 31. desember 2025.

Mat á fjárhagsáhrifum hefur ekki breyst frá fyrirliggjandi mati sem fylgdi upphaflegu frumvarpi til laganna, sem var flutt á 154. löggjafarþingi, mál nr. 1131. Líkt og rakið er í áhrifamati í greinargerð sem fylgdi því frumvarpi þá ráðast áhrif á ríkissjóð af því framlagi sem sjóðurinn hlýtur í fjárlögum eða með millifærslum úr varasjóði hverju sinni. Þar segir enn fremur að gróflega megi áætla að ef til tjóns komi þá geti það numið allt að 400 millj. kr. að teknu tilliti til eigin áhættu rekstraraðila. Af þeim sökum er miðað við að fjárveiting ríkissjóðs til sjóðsins muni ekki nema hærri upphæð en því, óháð því hvort tjón hafi farið fram úr þeim mörkum.

Breyting frumvarpsins minnkar þá miklu óvissu sem atvinnulíf í Grindavíkurbæ býr nú þegar við. Það er mikilvægt að löggjafinn komi saman og afgreiði þetta mál af þeim sökum. Ég vil leyfa mér að vísa til allra helstu raka sem fram komu við fyrri meðferð þessa máls hér í þinginu. Það er ákveðin óvissa sem vofir yfir atvinnustarfseminni og það getur komið til tjóns sem við getum réttlætt að veita þessa tryggingu fyrir sem felst í lögunum. Ef við framlengjum ekki ákvæðið eða ef við hefðum ekki lög af þessum toga þá má gera ráð fyrir því að atvinnurekendur yrðu mun meira hikandi við að hefja starfsemi og láta reyna á möguleika til þess að koma aftur hjólum atvinnulífsins á svæðinu á snúning.

Virðulegi forseti. Ég hef með þessu gert grein fyrir helstu efnisatriðum og legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar sem og til 2. umræðu.