Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Hér er spurt um atriði sem er ekki að finna í frumvarpinu en ég get deilt því með hv. þingmanni að Grindavíkurnefndin hefur unnið mikið starf á undanförnum vikum og mánuðum og lagt sig eftir því að skilja stöðu Grindvíkinga með hliðsjón af þeim úrræðum sem hafa verið í gildi, lagt mat á þörfina fyrir framlengingu, eins og þeirri sem við erum hér að ræða um og ég er hér að mæla fyrir, og eins líka að skoða virkni úrræða sem hafa verið í gildi, þörfina fyrir áframhaldandi stuðning af því tagi.
Við þekkjum það sem hv. þingmaður minntist stuttlega á sem eru kröfur eða óskir sumra atvinnurekenda um uppkaup á atvinnuhúsnæði. Þetta hefur verið til umfjöllunar m.a. í nefndinni og það er dálítið vandasamt að höggva á alla þessa hnúta á þessum fáu dögum sem þingið er að störfum til 15. nóvember, en við höfum verið að greina þessa þætti. Fjármálaráðherra er með sitt starfsfólk í þeirri vinnu ásamt með því sem gerist hjá Grindavíkurnefndinni. Ég veit að ráðherrann hyggst funda vegna þessa í dag með formanni Grindavíkurnefndarinnar. Þegar upp er staðið erum við kannski að ræða um það hér hvort þeir fáu þingdagar sem eftir eru muni gagnast okkur til þess að taka saman slík álitamál og leiða þau til lykta eða hvort það þurfi að bíða nýs þings, (Forseti hringir.) sem maður getur ekki annað sagt en að ákveðin rök standi til þess að gera.