Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er bara mjög gott og Grindavíkurnefndin virðist vera að vinna gott starf eftir því sem ég hef heyrt. En á sama tíma eru þessi litlu atvinnurekendur komnir í mikinn vanda. Eins og við vitum er þetta ólíkt öðrum náttúruhamförum sem höfum staðið frammi fyrir þar sem það er yfirleitt þannig að þær gerast og klárast. Þetta er búið að standa yfir í gríðarlega langan tíma og fólk hefur verið í óvissu í mjög langan tíma. Lán eru að fara að falla og allt þetta og frestum sem voru veittir er að ljúka. Jú, það eru fáir dagar eftir af þinginu og þarna er ýmislegt sem er flókið en það hefði náttúrlega átt að vera komið miklu lengra. Það er í rauninni það sem er kannski málið sem við stöndum frammi fyrir. Það er spurning hvort a.m.k. sé hægt að framlengja þau úrræði sem þó voru gefin, eins og t.d. varðandi fresti sem bankar veittu og annað þess háttar, hvort hægt sé að framlengja það meira þannig að ný ríkisstjórn geti komið lausnir, að fólk sé ekki bara skilið eftir í lausu lofti þangað til nýtt þing kemur saman og enginn veit í rauninni hvað stjórnarmyndunarviðræður og annað á eftir að taka langan tíma. Það er í rauninni ekki ásættanlegt þannig að eitthvað þarf að gera.