Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni, það er mikilvægt að fólk viti í hvaða farvegi málin eru. Ég hlýt þó að vilja taka það fram hér að við teljum að með þeim aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til hafi stjórnvöld gengið mjög langt. Ein helsta krafan sem við fundum á undanförnum mánuðum frá atvinnulífinu í Grindavík var sú að tryggja opnun Grindavíkur að nýju, að hægt væri að fara hindrunarlaust til Grindavíkur og frá. Það hefur verið farið nokkuð varlega í því og það hefur tekið tíma að opna bæinn. En til að okkur liði vel með það var gengið úr skugga um að allar flóttaleiðir væru opnar, að við værum með rétt mat á hættustiginu, að nauðsynlegir innviðir hefðu verið lagfærðir eftir atvikum og eftir mati á þörf fyrir slíkt. Eins líka að búið væri að gera ráðstafanir út af hættum sem leynast í Grindavík, t.d. vegna þess að jörð hefur þar skroppið í sundur og sprungur víða. En þessum áfanga náðum við. Við náðum honum núna í október og það var gríðarlega jákvæður og mikilvægur áfangi fyrir alla Grindvíkinga að tryggja hindrunarlausa ferð til og frá Grindavík. Ég ítreka að þetta er það sem mér fannst hafa verið efst á blaði einmitt hjá smærri atvinnurekendum. En við þurfum að skoða hvað hægt er að gera og taka saman upplýsingar sem við höfum, leggja mat á þau gögn sem Grindavíkurnefndin er með. Eins og ég rakti hér áðan þá veit ég að fjármálaráðherra hyggst funda með formanni nefndarinnar í dag. Það verður ekki fyrirstaða hér af minni hálfu, við þær aðstæður sem eru uppi í pólitíkinni, að taka góðar tillögur og reyna að fleyta þeim áfram. (Forseti hringir.) En ég held að raunsæi myndi segja manni að ekki sé hægt að klára öll slík mál eða allar slíkar hugmyndir og botna þær á þessum fáu dögum, því miður.