155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[11:03]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir hans orð hér og fagna að sjálfsögðu öllum þeim atriðum sem geta gert það að verkum að hagur þeirra sem hafa búið í Grindavík og búa þar enn verði betri og verði bættur með einhverjum hætti.

Mig langar kannski fyrst að byrja á því að spyrja hæstv. ráðherra að því, af því að hér er um að ræða óverulegar fjárhæðir, 400 millj. kr. hugsanlega: Hversu mikið hefur þetta verið nýtt hingað til? Það væri gott að vita hvernig þetta úrræði hefur verið nýtt. En mig langar líka, af því að við erum á síðustu dögum þingsins og erum að reyna að framlengja þau mál sem hafa tekið á málefnum Grindvíkingar, að spyrja hæstv. ráðherra. Þrátt fyrir að hann segi hér að það sé erfitt að klára suma hluti áður en til þingloka kemur þá er það í þessu umrædda máli bara spurning um eina dagsetningu. Hv. þm. Ásthildur Lóa nefndi hér húsnæðisstuðninginn sem m.a. bæjarstjórnin hefur verið að kalla eftir, hvort við getum ekki bara einhent okkur í það að klára m.a. það mál því að það er í raun og veru eins og í þessu máli bara ein dagsetningarbreyting og ekkert annað. Ég velti því fyrir mér af hverju við þurfum endilega að vera að bíða með slík úrræði ef við ætlum yfir höfuð að gera eitthvað í þessu máli. Við heyrðum það í fréttunum í gærkvöldi að það eru 90–100 Grindvíkingar án húsnæðis enn þá, ári eftir að atburðirnir áttu sér stað.