155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[11:06]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svona aðeins bara til að minna á það erum við með annað mál hér í þinginu sem eru stuðningslánin sem rætt var um í vor. Nú kann mat okkar að hafa breyst eitthvað í millitíðinni á atvinnustarfseminni í Grindavík og þörfinni fyrir stuðningslánin en ríkisstjórnin a.m.k. hefur staðið við sitt með því að koma með málið hingað.

Varðandi nýtingu afurðalánanna þekki ég ekki til þess að það hafi reynt á lögin til þessa, sem betur fer kannski því að það segir okkur að það hafi ekki orðið slíkt tjón að það falli undir lögin. En ég held að lögin veiti mjög mikilvæga tryggingu fyrir tjóni sem getur komið upp, eins og oft er sagt tryggja menn ekki eftir á. Það breytir ekki mikilvægi málsins í mínum huga.

Varðandi aðrar dagsetningar þá já, það kann að vera að hægt sé að finna flöt á því hér í þinginu að færa til dagsetningar í einstaka málum. Það væri bara besta mál ef við getum náð samstöðu um það í þinginu við þær aðstæður sem eru uppi. Ég ætla ekki að úttala mig um allar slíkar hugmyndir. Ég bara bendi á að það er ýmislegt sem rætt er.

Varðandi þá sem eru enn í húsnæðisvanda þá komu þessar tölur sem hafa verið í fréttum í vikunni okkur nokkuð á óvart vegna þess að þær eru ekki í samræmi við það sem við höfum haft frá þeirri þjónustumiðstöð sem við höfum haldið úti og hefur verið að fylgjast með stöðu húsnæðisöflunar Grindvíkinga. Við hyggjumst leita frekari skýringa á því hvers vegna svona háar tölur eru nefndar þegar okkar upplýsingar hafa verið um annað. En ég ætla bara að segja að vonandi er ekki rétt að það séu svona margir sem eiga í miklum vanda. Við erum líka með vísbendingar um að fólk hafi selt húsnæðið sitt, ekki endurfjárfest en sé að þiggja húsnæðisbætur þrátt fyrir hafa þegar losað um fyrri eign sína í Grindavík. Kannski er það vegna þess að það hefur ekki fundið húsnæði við hæfi, en það kemur að því að húsnæðisstuðningurinn (Forseti hringir.) rennur sitt skeið og þá ætti fólk vegna uppkaupanna að vera í færum til að endurfjárfesta.