Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar hérna. Nú erum við með þessa svokölluðu Grindavíkurnefnd að störfum sem er nú eftir því sem ég hef haft fregnir um að leggja hugsanlega til breytingar á Þórkötlu um uppkaup á annars konar húsnæði en hingað til hefur verið keypt upp. Ég fagna því ef sú umræða kemst af stað að það eigi að skoða það. Það er búið að vera að bíða eftir því og hæstv. ráðherra veit það að smærri fyrirtæki í Grindavík hafa verið að óska eftir uppkaupum. Það er búið að liggja fyrir í marga mánuði og það á ekkert að vera að koma okkur á óvart að slíkar tillögur hafi verið lagðar fram.
Mig langar aðeins að nota tímann til að ræða sveitarfélagið sjálft en eftir því sem segir á vefsíðu mbl.is í morgun, og við höfum svo sem haft vitneskju um, gæti sveitarfélagið farið í greiðsluþrot á næsta ári, á miðju næsta ári. Við vitum auðvitað ástæðurnar. Stærstur hluti íbúa hefur flutt lögheimili sitt annað, m.a. til að njóta þjónustu í öðrum sveitarfélögum, þannig að útsvarsgreiðslur til sveitarfélagsins eru þverrandi og nánast mjög litlar. Síðan er Þórkatla undanskilin fasteignagjöldum þannig að sveitarfélagið hefur engin fasteignagjöld heldur. Þá spyr maður um möguleika sveitarfélagsins til að lifa af þegar það verða engar tekjur til sveitarfélagsins á næsta ári. Jöfnunarsjóðurinn dettur niður þannig að þá erum við að horfa fram á það að Grindavíkurbær verði bara gjaldþrota.