155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[11:10]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég segi munum við áfram leggja mat á hugmyndir um frekari aðgerðir eða breytingu á eldri aðgerðum og í ljósi stöðunnar í þinginu er augljóst að það þarf að myndast einhver samstaða um það á þinginu fyrir þinglok. En varðandi fjárhagslega stöðu Grindavíkur þá hefur legið fyrir að sveitarfélag sem hefur tapað bróðurparti allra íbúa sinna og þar sem atvinnustarfsemi hefur orðið fyrir miklu höggi er komið í gjörbreytta stöðu og mjög alvarlega. Í sjálfu sér hefur það komið á óvart þegar maður skoðar tölurnar hversu margir eru í reynd enn þá að greiða útsvar til Grindavíkur miðað við þann tiltölulega fámenna hóp sem enn þá hefur haft aðsetur á svæðinu. Hér er ég að vísa til þess hversu margir eru í raun og veru komnir með búsetuna í önnur sveitarfélög, farin að þiggja þjónustu þar en hafa ekki fært lögheimilisskráningu sína. Það er því ekkert sem kemur á óvart í sjálfu sér varðandi fjárhagsstöðu Grindavíkur en það sem þó kom í ljós var að hin gríðarlega sterka fjárhagsstaða Grindavíkur í upphafi þessara hamfara var forsenda fyrir því hversu lengi sveitarfélagið gat haldið sjó og sinnt sínum lögbundnu verkefnum framan af. Þetta er spurning sem ekki er auðsvarað: Hvað verður til lengri tíma? Allar aðgerðir okkar hingað til hafa verið byggðar upp á trú um að við getum endurheimt Grindavík eins og við þekktum hana. Þess vegna byggðum við varnargarðana. Þess vegna stóðum við með atvinnulífinu. Þess vegna gáfum við fólki sem vildi selja húsin sín og koma sér fyrir annars staðar rétt til að kaupa húsin aftur. Við komum eignunum ekki strax út á markað og erum ekki með hugmyndir (Forseti hringir.) um slíkt heldur erum með aðgerðir sem eru allar hugsaðar til þess að tryggja að ef einhver kostur er á uppbyggingu atvinnulífs (Forseti hringir.) og endurheimt mannlífsins í Grindavík þá ætlum við stjórnvöld að standa með þeirri von.