155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

316. mál
[11:13]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga nr. 84/2023.

Með frumvarpinu er lagt til að framlengja gildistíma tiltekinna ákvæða laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Ákvæðin lúta að heimild ráðherra, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, til að taka ákvörðun um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna sem miða að því að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir og aðrir almannahagsmunir verði fyrir tjóni af völdum náttúruvár sem tengist eldstöðvakerfum á Reykjanesskaga. Að öðrum kosti myndu ákvæðin falla á brott þann 1. janúar næstkomandi en þeim var ætlað að gilda tímabundið til eins árs til að bregðast við þeim jarðhræringum sem standa nú yfir á Reykjanesskaganum.

Á grundvelli núgildandi laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga hef ég tekið ákvarðanir um að heimila uppbyggingu varnargarða til að verja almannahagsmuni, byggð og innviði. Ákvarðanirnar hafa byggt á tillögum frá ríkislögreglustjóra í samræmi við áskilnað laganna og þegar ákvarðanir hafa verið teknar hef ég lagt ríka áherslu á að við framkvæmd varnargarðanna sé tekið mið af stöðu og þróun jarðhræringa hverju sinni og með tilliti til þeirra lagt mat á nauðsyn næstu áfanga. Þrátt fyrir að búið sé að koma upp staðbundnum vörnum við bæði Svartsengi og Grindavík eru jarðhræringar og eldsumbrot á Reykjanesskaganum stöðugum breytingum háð og því nauðsynlegt að fylgjast vel með þróun mála með tilliti til þeirra varna sem nauðsynlegt getur verið að koma upp. Viðeigandi stjórnvöld hafa til að mynda bent á að valkostir eru afar takmarkaðir ef Reykjanesbrautin lokast ásamt því að samfélagslegum kostnaður við það yrði verulegur. Þá eru á nærliggjandi svæðum mikilvægir innviðir á borð við fjarskipta- og hitaveitulagnir og byggð í Vogum. Með vísan til þessa er mikilvægt að framlengja gildistíma tiltekinna ákvæða laganna enda ekkert sem bendir til þess að jarðhræringum á svæðinu sé að ljúka. Þá liggur fyrir að taka þarf afstöðu til frekari uppbyggingar varnargarða á Reykjanesskaganum, m.a. til að verja aðra mikilvæga innviði.

Ég vil þó leggja áherslu á að mikilvægt er að hafa í huga að með lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga er mælt fyrir um að ráðherra sé heimilt að taka ákvörðun um tilgreindar framkvæmdir og hrinda þeim af stað án þess að gæta þurfi að hefðbundinni málsmeðferð samkvæmt skipulagslögum, stjórnsýslulögum, lögum um náttúruvernd og öðrum lögum sem annars myndu gilda um slíkar framkvæmdir. Þrátt fyrir að nauðsynlegt sé að framlengja gildistíma laganna þá þarf að taka til skoðunar eins fljótt og unnt er, og horfa þá til lengri tíma, hvernig málsmeðferð ákvarðana um uppbyggingu fyrirbyggjandi ráðstafana af þessu tagi verði háttað. Þá er vert að hafa í huga að kostnaður vegna framkvæmdanna greiðist úr ríkissjóði en heildarkostnaður vegna framkvæmdanna er í dag talinn vera í kringum 10 milljarðar kr.. Tryggja þarfa að þeirri vinnu verði lokið áður en gildistími laganna rennur sitt skeið.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.